Lið FNV í Gettu betur 2021-2022
Lið FNV í Gettu betur 2021-2022

Á meðan flestir nemendur Fjölbrautaskóla Norðurlands vestra eru komnir í langþráð jólafrí er nóg að gera hjá Gettu betur liði skólans, enda er undirbúningur fyrir keppni nýs árs á lokametrunum. Mótherji FNV í fyrstu umferð keppninnar verður Tækniskólinn í Reykjavík og fer viðureignin fram þann 11. janúar n.k.

Lið FNV hefur æft vel alla önnina og er fullt tilhlökkunar. Liðið skipa þau Íris Helga Aradóttir, Ásta Aliya Friðriksdóttir Meldal, Kristey Rut Konráðsdóttir og Óskar Aron Stefánsson.