Gettu betur lið FNV keppir við lið starfsfólks
Gettu betur lið FNV keppir við lið starfsfólks

FNV mætir MK í fyrstu umferð Gettu betur og fer viðureignin fram í kvöld, 9. janúar, klukkan 21:00 í beinni útsendingu á Rás 2.

Gettu betur lið FNV skipa þau Óskar Aron Stefánsson, Íris Helga Aradóttir og Alexander Jóhannesson. Hluti af undirbúningi liðsins var keppni við lið starfsfólks sem fram fór nú í morgun. Í skemmtilegri keppni sigraði Gettu betur liðið 18-14 og mætir því með góðan meðbyr til leiks í kvöld.

Áfram FNV!