Dagskrá opinna daga
Dagskrá opinna daga

Opnir dagar verða í FNV frá miðvikudeginum 13. mars til föstudagsins 15. mars. Þá víkur hefðbundin kennsla í dagskóla fyrir ýmiskonar viðburðum og uppákomum.

Skráning er hafin og hægt er að skrá sig í bóknámshúsinu (hliðina á sjoppunni). Dagskránna má sjá á myndinni með fréttinni og hana má einnig finna í Facebook hópnum Nemendur í FNV og á instagram aðgangi Nemó.

Nemendur í dreifnámi geta skráð sig á netfangið opnirdagarfnv@gmail.com.

Nemendur þurfa að velja að minnsta kosti einn viðburð fyrir og eftir hádegi á miðvikudag og fimmtudag og fyrir hádegi á föstudag. Svigrúm er innan dagskrár til þess að skrá sig í fleiri viðburði.

Opnum dögum lýkur með árshátíð á sal skólans á föstudagskvöld.