Samningur um byggingu nýs verknámshúss undirritaður

Frá undirritun samningsins
Frá undirritun samningsins

Föstudaginn 5. apríl var undirritaður samningur um byggingu nýs verknámshúss við Fjölbrautaskóla Norðurlands vestra. Ásmundur Einar Daðason barna- og menntamálaráðherra, Þórdís Kolbrún Reykfjörð Gylfadóttir, fjármála- og efnahagsráðherra, Ólafur Þór Ólafsson, sveitarstjóri Sveitarfélagsins Skagastrandar, Erla Jónsdóttir, oddviti Skagabyggðar, Pétur Arason, sveitarstjóri Húnabyggðar, Sigfús Ingi Sigfússon, sveitarstjóri Sveitarfélagsins Skagafjarðar, Þorleifur Karl Eggertsson, oddviti Húnaþings vestra og Ingileif Oddsdóttir, skólameistari FNV undirrituðu samninginn. Þórdís Kolbrún Reykfjörð Gylfadóttir átti þess ekki kost að vera viðstödd athöfnina.

Undirritunin fór fram í verknámshúsi Fjölbrautaskólans að viðstöddu margmenni þ.á.m. nemendum, starfsfólki skólans og fulltrúum úr atvinnulífinu.

Samningurinn gerir ráð fyrir stækkun verknámshúss um allt að 1.400 fermetra. Kostnaðarskipting á milli ríkis og sveitarfélaga er á þann veg að ríkið greiðir 60% kostnaðar en sveitarfélögin 40%. Vinna við frummatsskýrslu fyrir bygginguna stendur yfir, en að henni lokinni hefst undirbúningur fyrir hönnunarvinnu og útboð.

Fyrirhuguð stækkun verknámshússins er langþráð í ljósi mikillar fjölgunar iðn- og starfsnámsnemenda við skólann. Nú er svo komið að á annað hundrað nemenda stundar helgarnám við skólann í húsasmíði, rafvirkjun, bifvélavirkjun og kvikmyndagerð. Þetta þýðir að húsnæðið er nýtt alla daga vikunnar. Þá hefur hlutfall iðn- og starfsnámsnema farið yfir helming nemendafjöldans frá haustinu 2021.

Við undirritunina þakkaði Ásmundur Einar sveitarstjórnarfólki, atvinnulífinu og skólanefnd fyrir þeirra framlag og minnti á mikilvægi skólans fyrir Norðurland vestra.

Ingileif Oddsdóttir skólameistari flutti ávarp og gerði grein fyrir nánu samstarfi skólans við atvinnulífið og sveitarfélögin á Norðurlandi vestra. Þá greindi hún frá því að fjölgun nemenda úr 400 árið 2011 í rúmlega 700 hafi fyrst og fremst verið í iðn- og starfsnámi.