Dagana 8.– 9. nóvember verður varða nr. tvö á haustönn 2023. Gera má ráð fyrir að kennarar boði ykkur í viðtal annan hvorn daginn. Þið munuð, eins og í fyrri vörðu, fá vörðueinkunn í einstökum áföngum.

Einkunnirnar sem um ræðir eru eftirtaldar auk stuttra umsagna:

G = Gott

T = Tækifæri til umbóta

Ó = Ófullnægjandi

Það skal tekið fram að vörðueinkunnir hafa ekki áhrif á lokaeinkunn.

Tilgangurinn er fyrst og fremst að gefa ykkur hugmynd um stöðu ykkar á þessum tímapunkti og hvetja ykkur til dáða í náminu.

Þið eruð beðin um að fylgjast vel með skilaboðum einstakra kennara um boð í viðtöl og/eða verkefnaskil en misjafnt er eftir kennurum hverja þeir óska eftir að fá í viðtal og hvernig verkefnaskilum er háttað. Þeir nemendur sem ekki hafa verið boðaðir í viðtal, en óska eftir því, eru beðnir um að senda skilaboð til viðkomandi kennara þess efnis. Vinsamlegast athugið að hefðbundin kennsla fellur niður þessa daga.