Mynd af skólasvæðinu
Mynd af skólasvæðinu

Dagskrá fyrstu daga haustannar 2022:

17. ágúst kl. 17:00: Heimavist opnar fyrir nýnema

Heimavistin opnar fyrir nýnema (fæddir 2006 eða síðar) miðvikudaginn 17. ágúst klukkan 17:00 en fyrir eldri nemendur sunnudaginn 21. ágúst kl. 12:00.

17. ágúst kl. 19:00: Fundur með foreldrum nýnema

Fundur fyrir foreldra nýnema verður haldinn í Bóknámshúsi FNV miðvikudaginn 17. ágúst kl. 19:00. Fundinum verður streymt í gegnum Teams. Foreldrar fá fundarboð með tölvupósti þegar nær dregur.

18. - 19. ágúst: Nýnemadagar

Nýnemadagar eru ætlaðir nýnemum sem koma beint úr grunnskóla. Þeir hefjast klukkan 10:00 fimmtudaginn 18. ágúst í Bóknámshúsi FNV en nemendur á dreifnámsstöðvum mæta í dreifnámsstofur á Hólmavík, Hvammstanga og Blönduósi.

19. ágúst: Opnað fyrir stundatöflur og óskir um töflubreytingar í INNU

Stundatöflur verða aðgengilegar í INNU 19. ágúst og þá verður einnig hægt að óska eftir töflubreytingum. Leiðbeiningar vegna töflubreytinga er að finna á https://www.fnv.is/is/namid/itarefni/toflubreytingar

22. ágúst kl. 8:00: Skólasetning

Skólasetning verður á sal Bóknámshúss FNV klukkan 8:00 mánudaginn 22. ágúst.

22. ágúst kl. 8:45: Kennsla hefst samkvæmt stundaskrá

Hlökkum til að hitta ykkur öll