NÝSK2RA04_5 - Rafsmiðja

rafsmiðja

Einingafjöldi: 4
Þrep: 2
Forkröfur: Fab Lab Smiðja 1. þrep
Í áfanganum er fjallað um rafmagn og rafmagnsöryggi. Nemendur þekki almennar varnarráðstafanir í umgengni við rafmagn og varnir gegn of hárri snertispennu. Kynning á helstu verkfærum sem notuð eru í rafiðnaði. Fjallað um framleiðslu og dreifingu á raforku. Farið yfir notkun leiðara og algengustu ljósgjafa og rofa. Nemandinn fær að framkvæma afeinangrun og ganga frá endabúnaði, einnig að tengja klær og setja saman fjöltengi. Kennsla í notkun lóðbolta og lóðæfingar. Kynning á íhlutum sem notaðir eru í rafrásir. Farið yfir hönnun rafrása og yfirfærsla á prentplötu. Smíðuð verður einföld rafrás eða sett saman lítið rafeindatæki. Farið yfir lestur teikninga. Kennd notkun mælitækja sem notuð eru í rafiðnaði.

Þekkingarviðmið

Nemandi skal hafa öðlast þekkingu og skilning á:
  • almennum varnarráðstöfunum í umgengni við rafmagn
  • vörnum gegn of hárri snertispennu
  • helstu verkfærum sem notuð eru í rafiðnaði
  • framleiðslu og dreifingu á raforku
  • teikningalestri
  • hönnun rafrása og þeim íhlutum sem notaðir eru
  • aðferðum sem hafa að markmiði að bæta nýtingu hráefna, sem og förgun sorps

Leikniviðmið

Nemandi skal hafa öðlast leikni í að:
  • greina á milli leiðara og notkun þeirra
  • meðhöndla algengustu ljósgjafa og rofa
  • afeinangra og ganga frá endabúnaði
  • tengja saman klær og setja saman fjöltengi
  • nota lóðbolta og smíða einfaldar rafrásir eða setja saman lítið rafeindatæki
  • velja viðeigandi verkfæri og tækjabúnað með tilliti til framkvæmdarinnar

Hæfniviðmið

Nemandi skal geta hagnýtt þá almennu þekkingu og leikni sem hann hefur aflað sér til að:
  • greina orsakir galla sem fram koma í framkvæmd og mæla fyrir um aðgerðir til endurbóta
  • geta greint hvort tilskyldum reglum sé fylgt eftir varðandi öryggismál
Nánari upplýsingar á námskrá.is