Umsókn
Fullt er í námið eins og er en hægt er að skrá sig á biðlista með því að senda tölvupóst á fnv@fnv.is eða hringja í síma 455-8000.
Forkröfur meistaranáms
Sveinspróf í viðkomandi grein.
Skipulag
Meistaraskólinn er kenndur í staðnámi og í gegnum Teams að loknum venjulegum vinnudegi.
Námsmat
Lögð er áhersla á leiðsagnarmat og símat sem gefur nemendum uppbyggilega og hvetjandi leiðsögn og metur vinnuframlag þeirra jafnt og þétt yfir námstímann. Námsmat er fjölbreytt og aðferðir taka mið af fjölbreyttum kennsluháttum, námsmarkmiðum og hæfni nemenda. Námsmat á brautinni er fólgið í símati og lokaprófi eða eingöngu símati. Nánari tilhögun námsmats s.s. skiladagar verkefna og vægi kemur fram í námsmatsreglum skólans.
Reglur um námsframvindu
Til að standast námsmat í áfanga þarf lágmarkseinkunnina 5. Reglur um námsframvindu eru birtar í skólanámskrá.
Hæfniviðmið
- stofna og reka fyrirtæki í íslensku atvinnulífi í samræmi við lög og reglur.
- nýta fjölþjóðasamstarf og fjölþjóðlega viðskiptasamninga í rekstri í samræmi við þær reglur sem gilda á EES svæðinu.
- sjá um starfsmannahald, skipuleggja framleiðslu og framkvæmdir.
- Sjá um að jafnréttisáætlun sé virk og geta metið árangur hennar.
- tileinka sér og nýta þær rannsóknir og nýjungar sem tilheyra rekstri í greininni.
- beita útreikningum og sölufræðum við innkaup á vörum til rekstursins.
- færa bókhald, greina það og nýta upplýsingar úr því á gagnlegan hátt.
- vinna með þau gæðaviðmið sem lögboðin eru í greininni.
- vinna að vöruþróun og þróun á þjónustu í síbreytilegu rekstrarumhverfi.
- gera sér grein fyrir samfélagslegri ábyrgð sinni í rekstri.
- fylgja eftir markaðáætlun fyrirtækja, mæla árangur, meta stöðu og setja ný markmið.
- sjá um að stefna um viðskiptasiðferði sé virk og geta metið árangur hennar.
- skipuleggja þjálfun starfsfólks í sinni iðngrein. Annast skiplagningu náms og þjálfun nemenda í greininni eftir þeim lögum og reglugerðum sem gilda og þeim námskröfum sem gerðar eru hverju sinni.
- meta námsþarfir nemenda og starfsfólks og velja réttar og viðeigandi aðferðir við leiðsögn. Geti gert heilstæða námsáætlun fyrir nemanda með tilliti til vinnustaðanáms/starfsþjálfunar og samkvæmt þeim viðmiðum sem koma fram í Aðalnámskrá.
- skipuleggja og halda utan um fjármál fyrirtækis.
- túlka og greina ársskýrslur og meta stöðu fyrirtækja út frá þeim.
- reikna tilboð, gera samninga, gera tilboðs- og sölugreiningar ásamt framleiðslu-, sölu- og markaðsáætlanir.
- gera markaðsgreiningu og kynningaáætlun ásamt því að vinna að áætlun í viðskiptasiðferði fyrir fyrirtækið.
- nýta verkfæri verkefnastjórnunar við skipulag og úrlausn verkefna.
- vöruþróun og þróun þjónustu.
- stjórna framleiðslu- og framkvæmdum.
- gera greiningu og skipulag öryggis- og umhverfismála, gera skipulag vinnustaða og stjórnunar- og framleiðsluferla með tilliti til reksturs.
- beita skapandi hugsun við úrlausnir verkefna til að mæta breyttum aðstæðum í síbreytilegu rekstrarumhverfi.
- gera jafnréttisáætlun fyrir fyrirtækið.
Kjarni
Kjarni - skipting á annir
Sérgreinar iðngreina
Meistaranám við FNV er í boði fyrir allar starfsgreinar en neðantaldar greinar hafa sérgreinar sem hér segir:
Byggingagreinar:
Til viðbótar þarf 3 áfanga. Þeir eru:
- MMÆL4MS03 Mælingar
- MLÖR4MS02 Lögfræði
- MEFB4MS03 Burðarþol og efnisfræði
Málmiðngreinar:
Til viðbótar þarf 8 einingar í fagtengdum greinum t.d. vélstjórnargreinum umfram vélvirkjanámið.
Rafiðngreinar:
Til viðbótar þarf 30 einingar í faggreinum hjá Rafmennt.
Meistarabréf
Útgáfa meistarabréfa er á höndum sýslumanns þar sem umsækjandi á lögheimili.