Launastefna Fjölbrautaskóla Norðurlands vestra

Skólameistari ber ábyrgð á launastefnu Fjölbrautaskóla Norðurlands vestra sem byggist á jafnlaunastefnu og jafnréttisáætlun skólans. Markmiðið er að tryggja að öllum kynjum séu greidd jöfn laun og njóti sömu kjara fyrir sömu eða jafn verðmæt störf í samræmi við ÍST 85:2012. Verkefnisstjóri jafnlaunakerfis er fulltrúi stjórnenda varðandi jafnlaunakerfi og er ábyrgur fyrir innleiðingu og viðhaldi þess í samræmi við staðalinn ÍST 85:2012.

Fjölbrautaskóli Norðurlands vestra greiðir laun sem taka mið af þeim kröfum sem starfið gerir um menntun, þekkingu, hæfni og ábyrgð í samræmi við starfaflokkun skólans og gildandi kjarasamninga, þar með talið stofnanasamninga.

  • Skólameistari ber formlega ábyrgð á öllum launaákvörðunum og gætir þess að samræmis sé gætt við alla ákvarðanatöku þar um.
  • Launaákvarðanir skulu byggðar á gagnsæjum og málefnalegum forsendum, í samræmi við kjarasamninga og starfslýsingar sem skulu vera til fyrir öll störf. Launaákvarðanir skulu tryggja að sömu laun séu greidd fyrir sambærileg og jafn verðmæt störf.
  • Í starfslýsingu komi fram þær kröfur sem gerðar eru til viðkomandi starfs.
  • Umfang og eðli starfs hefur áhrif á laun og ræðst af viðmiðum starfaflokkunar samkvæmt jafnlaunastaðli, svo sem hæfniskröfum til starfs, ábyrgð og úrlausn verkefna.

Starfsfólk getur óskað eftir viðtali við skólameistara um endurskoðun launa. Telji skólameistari þörf á endurskoðun vísar hann rökstuðningi þar um til fjármálastjóra og skólafulltrúa.

10. mars 2023
Ingileif Oddsdóttir, skólameistari.