Starfsfólk skólans:

  1. gætir þess að mismuna ekki, til dæmis vegna kyns, kynþáttar, kynhneigðar, aldurs, fötlunar, þjóðernis, trúarbragða eða skoðana
  2. gætir hlutleysis og lætur ekki persónuleg tengsl hafa áhrif á samskipti
  3. hefur hagsmuni nemenda og starfsfólks að leiðarljósi og gætir trúnaðar um einkamál þeirra og forráðamanna nemenda, innan sem utan skólans
  4. er andlit skólans út á við og gætir í öllu tali og gjörðum að orðspori skólans
  5. ræðir vinnutengd mál aðeins þar sem hægt er að gæta fyllsta trúnaðar
  6. sinnir störfum sínum af heilindum, ábyrgð og fagmennsku
  7. sýnir hvert öðru, nemendum og forráðamönnum virðingu og tillitssemi í öllum samskiptum
  8. virðir það nám og starf sem fram fer bæði innan og utan skólans

07.05.2025

Ingileif Oddsdóttir, skólameistari.