NÝSK2FE06_2 - Stafræn ferilmappa

ferilmappa

Einingafjöldi: 6
Þrep: 2
Forkröfur: Trésmiðja, Rafsmiðja, Plastsmiðja, Leður og roðsmiðja og Frumkvöðlafræði
Að nemendur geti búið til ferilmöppu fyrir Netið á rafrænu formi. Farið er yfir hönnun, innihald og mismunandi form rafrænna ferilmappa sem gerðar eru sérstaklega fyrir Netið. Nemendur gera sína eigin möppu og koma fyrir á Netinu.

Þekkingarviðmið

Nemandi skal hafa öðlast þekkingu og skilning á:
  • algengustu aðferðum og formum til þess að miðla verkum sínum á rafrænu formi á netinu
  • kostum og göllum mismunandi aðferða við að setja saman efni á rafrænu formi
  • hvernig skilvirkast er að koma efni frá sér í rafrænu formi, meðal annars með tilliti til útbreiðslu og áhorfs á netinu
  • hvernig útlit og framleiðsla á verkum sínum getur haft áhrif á markaðsetningu hennar

Leikniviðmið

Nemandi skal hafa öðlast leikni í að:
  • skipuleggja og framkvæma eigin hugmynd
  • gera einfalt skapalón að rafrænni ferilmöppu á textaskjali
  • taka upp rafrænar myndskrár á einföldu formi
  • smíða rafræna ferilmöppu með mynd og hljóðskrám, klippa myndskrár, bæta inn texta og hljóðsetja einfaldar myndskrár fyrir netið
  • keyra út úr myndvinnsluforriti ferilmöppu á rafrænu formi annars vegar aðgengilega fyrir takmarkaðan hóp notenda og hins vegar fyrir opin aðgang á netinu
  • velja viðeigandi forrit/form með tilliti til framkvæmdarinnar

Hæfniviðmið

Nemandi skal geta hagnýtt þá almennu þekkingu og leikni sem hann hefur aflað sér til að:
  • geta komið hugmynd sinni á það form að mögulegt er að miðla henni á aðgengilegan máta inn á netið
  • setja saman í myndvinnsluforriti teikningar, myndir af verkum, verkefnalýsinar, efnisval og annað sem hefur áhrif á skipulegann og aðgengilegann máta
  • geta greint hvort tilskyldum reglum sé fylgt eftir varðandi höfundarétt
Nánari upplýsingar á námskrá.is