fallmyndun, myndlist
Einingafjöldi: 5
Þrep: 1
Forkröfur: Sjónlist 1
Í áfanganum verður lögð áhersla á teikningar unnar með viðarkolum og blýanti. Einnig á endurnýtingu efnis í listum, teikningalestur og fallmyndun í grunnteikningu. Nemandinn þjálfi sig í að skoða, greina og meta fyrirmyndir sínar á kerfisbundinn og rökrænan hátt. Þjálfist í að nota hjálpargögn, svo sem neikvæð form, lóðlínu og hjálparlínur, til að bera saman stærðarhlutföll. Alhliða þjálfun í teikningu og rannsókn á gildi og tjáningarmöguleikum línuteikningar. Nemandinn þjálfist í að meta hluti frá formi, lit og áferð og geti með því endurnýtt ólík og ótengd efni í listaverk. Áhersla lögð á að nemendur þjálfist í að leggja mat á vinnu sína og annarra.
Nemendur eru hvattir til að þróa hugmyndir sínar og samhliða vinnu í tíma er ætlast til þess að þeir haldi skissubók þar sem þeir vinna og þróa hugmyndir sínar frá því sem gert er í tímum.
Þekkingarviðmið
Nemandi skal hafa öðlast þekkingu og skilning á:
- möguleikum viðarkola og blýants í teikningu
- tjáningarmöguleikum línuteikningar
- Þýðingu neikvæðra forma
- hvernig hægt er að nota mælingaraðferðir og hjálparlínur til að leggja mat á stærðarhlutföll
- möguleikum endurnýtingu efnis í listum
- einföldum fallmyndum
- einföldum grunnteikningum
Leikniviðmið
Nemandi skal hafa öðlast leikni í að:
- vinna með blýants- og kolateikningar
- nota hjálpargögn í teikningu
- teikna mismunandi hluti í réttum hlutföllum
- sjá möguleika með endurnýtingu efnis í listum
- teikna einfaldar fallmyndir
Hæfniviðmið
Nemandi skal geta hagnýtt þá almennu þekkingu og leikni sem hann hefur aflað sér til að:
- meta hluti út frá formi, lit og áferð
- bera saman hugmyndir sínar og samhliða teikningu
- lesa og vinna með einfaldar grunnteikningar
- greina og meta fyrirmyndir sínar á kerfisbundinn og rökrænan hátt ræða um og leggja mat á vinnu sína og annarra
Nánari upplýsingar á námskrá.is