SAGA1ÍH05 - Íslensk hönnunarsaga, frá 1900 til dagsins í dag

frá 1900 til dagsins í dag, íslensk hönnunarsaga

Einingafjöldi: 5
Þrep: 1
Í áfanganum verður lagt áherslur á kennslu í íslenskri hönnunarsögu frá aldamótum 1900 til dagsins í dag. Farið verður yfir helstu áhrifaþætti hönnuða á þessum tíma svo sem frelsisbaráttuna, fyrri og seinni heimstyrjöldin, menntun, nýbreytni í framleiðsluþáttum og annað sem voru ríkir áhrifaþættir hverju sinni. Farið yfir samanburð á íslenskri hönnun og skandinavískri hönnun. Lögð verður sérstök áhersla á íslenskt handverk, þekktar byggingar, húsgagna- og innréttingasmíði. Einnig verður rennt yfir sögu okkar helstu hönnuða s.s. Gunnar Magnússon, Svein Kjarval, Guðjón Samúelsson og aðra sem hafa haft mikil áhrif á íslenska hönnun og handverk.

Þekkingarviðmið

Nemandi skal hafa öðlast þekkingu og skilning á:
  • helstu áhrifaþáttum hönnuða í gegnum áratugina
  • Þekktustu hönnuðum landsins hverju sinni
  • Þekktum hönnunarstykkjum, hvort heldur sem um ræður handverk, byggingar, einstök húsgögn eða hönnunarstíla
  • hverjir eru helstu áhrifaþættir samtímahönnunar

Leikniviðmið

Nemandi skal hafa öðlast leikni í að:
  • tilgreina einstaka stíla íslenskra hönnuða
  • tengja saman handverk, byggingar, húsgögn eða önnur hönnunarstykki við ákveðna hönnuði
  • tilgreina tímabil við hönnunnarstíla

Hæfniviðmið

Nemandi skal geta hagnýtt þá almennu þekkingu og leikni sem hann hefur aflað sér til að:
  • tengja saman áhrifaþætti innan samfélagsins við þróun hönnunar hverju sinni
  • geta greint á milli hönnuða og þess sem einkennir þá
  • geta skilgreint hvað einkennir íslenska hönnun frá skandinavískri hönnun og hvers vegna
  • geta skilgreint hvað er líkt með skandinavískri hönnun og hvers vegna
  • Þekkja þróun á íslensku handverki í gegnum tímabilið
Nánari upplýsingar á námskrá.is