Skyndihjálp - sláturiðn
Einingafjöldi: 2
Þrep: 1
Markmið áfangans er að nemendur fái undirstöðuþekkingu í markvissum vinnubrögðum hvað varðar vinnuslys, hópslys og náttúruhamfamfarir. Kennsla í skyndihjálp fer fram með bóklegum og verklegum æfingum. Áhersla er á almenna skyndihjálp við slasaða og sjúka.
Þekkingarviðmið
Nemandi skal hafa öðlast þekkingu og skilning á:
- algengustu slysum sem verða á vinnustað með áherslu á frumframleiðslufyrirtæki líkt og sláturhús.
- mikilvægi þess að kunna og geta beitt þeim handtökum sem þarf við fyrstu hjálp og geti veitt markvissa hjálp á vettvangi.
- mikilvægi helstu viðbragða og ráðstafana við slysum sem verða á vinnustað.
- mikilvægi forvarna hvað varðar vinnuslys.
- Þeim hættum sem geta stafað af efnum, t.d klór og öðrum sambærilegum efnum og gert varúðarráðstafanir gagnvart þeim.
- staðsetningu sjúkrakassa og kunni að nota innihald hans við fyrstu hjálp.
- viðbrögðum við brunavörnum og meðferð mismunandi slökkvitækja.
Leikniviðmið
Nemandi skal hafa öðlast leikni í að:
- beita markvissri fyrstu hjálp við þeim slysum sem verða á vinnustað með áherslu á sláturhús.
- bregðast við með markvissum vinnubrögðum ef eldur kemur upp á vinnustað með áherslu á sláturhús.
Hæfniviðmið
Nemandi skal geta hagnýtt þá almennu þekkingu og leikni sem hann hefur aflað sér til að:
- geta beitt undirstöðuþekkingu sinni í fyrstu hjálp og markvissum vinnubrögðum ef slys verða á vinnustað sem og ef um hópslys eða slys vegna náttúruhamfara á sér stað.
Nánari upplýsingar á námskrá.is