Kynning, verkleg þjálfun á ýmsum störfum í nærumhverfi
Einingafjöldi: 5
Þrep: 1
Forkröfur: Engar
Í áfanganum fer fram kynning og verkleg þjálfun á ýmsum störfum í nærumhverfinu. Nemandinn fær tækifæri til að að vinna á vinnustað/stöðum og starfa á honum undir leiðsögn
Þekkingarviðmið
Nemandi skal hafa öðlast þekkingu og skilning á:
- mismunandi vinnustöðum
- ábyrgð og skyldum þess að vera starfsmaður á vinnustað
- eigin áhugasviðum og styrkleikum sem starfsmaður
- mikilvægi þess að sýna sjálfstæði og frumkvæði í starfi
- almennum reglum vinnumarkaðsins og vinnuumhverfis
- öryggis og aðbúnaði fyrir starfsmenn á vinnustöðum
Leikniviðmið
Nemandi skal hafa öðlast leikni í að:
- beita aðferðum sem leiða til betri vinnubragða í starfi
- þekkja eigin styrkleika til mismunandi starfa
- nýta reynslu og yfirsýn námsins í starfsvali síðar
- vinna sjálfstætt og í hópi
- leita að vinnu á almennum markaði
- yfirfæra lærða færni á raunverulegar aðstæður
Hæfniviðmið
Nemandi skal geta hagnýtt þá almennu þekkingu og leikni sem hann hefur aflað sér til að:
- skilja hvernig hægt er að öðlast sjálfstæði í vinnubrögðum
- skilja hvað þarf til að geta valið sér starf við hæfi
- skilja eigin styrkleika og áhugasvið þegar kemur að starfsvali
- skilja skyldur og ábyrgð þess að vera starfsmaður og á vinnumarkaði
- geta verið hluti af heild á vinnustað
- stunda áframhaldandi nám
Nánari upplýsingar á námskrá.is