Persónuleg tengsl, aðhald, réttindi og skyldur nemenda
Einingafjöldi: 1
Þrep: 1
Í áfanganum er verið að treysta persónuleg tengsl nemenda við kennara og náms-og starfsráðgjafa. Farið verður yfir réttindi og skyldur nemenda á framhaldsskólabraut og kynnt fyrir nemendum hvar vænta megi aðstoðar og úrlausna ef eitthvað kemur uppá. Sérstök áhersla á að byggja upp traust á milli nemenda og umsjónarkennara og nemanda og náms-og starfsráðgjafa.
Þekkingarviðmið
Nemandi skal hafa öðlast þekkingu og skilning á:
- að umsjónarkennari er trúnaðarmaður nemenda í skólanum auk náms-og starfsráðgjafa
- að einkaviðtöl og hópfundir á milli nemenda og kennara/náms-og starfsráðgjafa treysta persónuleg tengsl
- hvar hægt er að fá aðstoð innan skólans
- réttindum og skyldum nemanda í framhaldsskóla
- umsjón og aðhaldi skólans
Leikniviðmið
Nemandi skal hafa öðlast leikni í að:
- tjá sig við umsjónarkennara/náms-og starfsráðgjafa
- kunna skil á réttindum sínum og skyldum sem nemandi
- mæta í skólann og skila verkefnum
Hæfniviðmið
Nemandi skal geta hagnýtt þá almennu þekkingu og leikni sem hann hefur aflað sér til að:
- gera sér grein fyrir að hægt er að leita sér aðstoðar ef með þarf
- skilja að umsjónarkennari og náms-og starfsráðgjafi eru til staðar fyrir nemendur
- gera sér grein fyrir að góð ástundun er undirbúningur fyrir nám- og störf í framtíðinni
- gera sér grein fyrir að aðhald og umsjón er til að styðja við ástundun og framfarir í námi
Nánari upplýsingar á námskrá.is