Véla og tækjafræði fyrir slátrara
Einingafjöldi: 2
Þrep: 2
Markmið áfangans er að nemendur kynnist helstu vélum og tækjum sem notuð eru við slátrun í sláturhúsum, notkun þeirra og meðferð. Lögð er áhersla á gott ástand véla og mikilvægi öryggisatriða við vélavinnu. Kynntar eru sláturlínur og nýjungar í tækjakosti
Þekkingarviðmið
Nemandi skal hafa öðlast þekkingu og skilning á:
- meðferð og notkun vinnuvéla í slátrun.
- hvernig hnífar eru settir í vélar og teknir út við hreinsun og brýningu.
- mkilvægi skráningar og gæðastaðla í tengslum við viðhald á tækjum.
- Öryggiskröfum við notkun og umhirðu véla og tækja.
Leikniviðmið
Nemandi skal hafa öðlast leikni í að:
- beita viðurkenndum aðferðum við notkun og meðferð vinnuvéla í slátrun.
- beita viðurkenndum aðferðum hvað varðar öryggiskröfur, innra eftirlit og haccp/gÁmes á vinnustað.
- beita viðurkenndum aðferðum við ísetningu hnífa í vélar og þegar þeir eru teknir úr.
Hæfniviðmið
Nemandi skal geta hagnýtt þá almennu þekkingu og leikni sem hann hefur aflað sér til að:
- vinna samkvæmt góðum starfsháttum í sláturhúsum og matvinnslufyrirtækjum með hliðsjón af lögum og reglugerðum og íslenskri matvælalöggjöf.
- vinna samkvæmt haccp og gÁmes.
- leiðbeina nemendum og starfsfólki um viðurkennd vinnubrögð við notkun vinnuvéla í slátrun, ísetningu hnífa í vinnuvélar og úrtöku úr þeim.
Nánari upplýsingar á námskrá.is