Ársreikningar
Einingafjöldi: 5
Þrep: 3
Forkröfur: BÓKF2DR05
Meginhluti áfangans felst í gerð og greiningu ársreikninga. Farið er í lög um ársreikninga og reglugerð um framsetningu og innihald ársreikninga. Áhersla er lögð á uppsetningu rekstrar- og efnahagsreiknings í samræmi við lög um ársreikninga. Farið er í gerð sjóðstreymis og áætlanagerðar. Ársreikningar eru túlkaðir með kennitölum.
Þekkingarviðmið
Nemandi skal hafa öðlast þekkingu og skilning á:
- lögum um bókhald og ársreikninga
- reglugerð um framsetningu og innihald ársreikninga
- áritun og skýringum með ársreikningum
- hvernig bókhald getur auðveldað áæltanagerð, stjórnun, eftirlit og ákvarðanatöku
- takmarkanir kennitalna
Leikniviðmið
Nemandi skal hafa öðlast leikni í að:
- geta sett upp rekstrar – og efnahagsreikning
- geta gert sjóðstreymi með beinni og óbeinni aðferð
- geta reiknað út og túlkað kennitölur út frá ársreikningum
Hæfniviðmið
Nemandi skal geta hagnýtt þá almennu þekkingu og leikni sem hann hefur aflað sér til að:
- geta lýst helstu þáttum fjárhagsáætlunar og geta skýrt hana
- geta sett upp áætlaðan rekstrar- og efnahagsreikning
- gera áætlanagerð
- geta sett fram og lesið úr sjóðstreymi
Nánari upplýsingar á námskrá.is