SÁLF2NS05 - Saga og þróun sálfræði með áherslu á námssálarfræði

Námssálarfræði, saga

Einingafjöldi: 5
Þrep: 2
Forkröfur: Inngangur að félagsvísindum
Í áfanganum er fjallað um sögu sálfræðinnar og þróun hennar sem fræðigreinar. Farið er yfir grunnhugtök greinarinnar og helstu frumkvöðlar og sálfræðistefnur kynntar. Sérstök áhersla er lögð á námssálarfræði og farið ítarlega í klassíska skilyrðingu, virka skilyrðingu og hugrænt nám. Í framhaldi af því er farið í hagnýtingu námssálarfræðinnar og kynnt sérstaklega atferlismótun og hugræn atferlismeðferð.

Þekkingarviðmið

Nemandi skal hafa öðlast þekkingu og skilning á:
  • sögu og þróun sálfræðinnar.
  • helstu sálfræðistefnum og frumkvöðlum þeirra.
  • helstu kenningum um nám, þá sérstaklega klassískri skilyrðingu, virkri skilyrðingu og hugrænu námi.
  • atferlismótun og hugrænni atferlismeðferð.

Leikniviðmið

Nemandi skal hafa öðlast leikni í að:
  • nota hugtök sálfræðinnar í ræðu og riti.
  • miðla helstu hugmyndum sálfræðinnar.
  • nota atferlismótun í daglegu lífi.
  • útskýra virkni hugrænnar atferlismeðferðar.

Hæfniviðmið

Nemandi skal geta hagnýtt þá almennu þekkingu og leikni sem hann hefur aflað sér til að:
  • afla sér upplýsinga um námsefnið, greina aðalatriði þeirra og miðla þeim.
  • taka sjálfstæða og gagnrýna afstöðu til námsefnisins.
  • rökræða um námsefnið bæði munn- og skriflega.
  • vera virkur í umræðum um einstaka efnisþætti áfangans.
  • nýta sér þekkingu sína á atferlismótun og hugrænni atferlismeðferð sjálfum sér til framdráttar.
Nánari upplýsingar á námskrá.is