SPÆN1AG05 - Spænska 1

evrópski tungumálaramminn, grunnur, stig a1

Einingafjöldi: 5
Þrep: 1
Forkröfur: engar
Þar sem þetta er byrjunaráfangi, er megináhersla lögð á að nemendur tileinki sér undirstöðuatriði tungumálsins. Strax frá upphafi eru nemendur þjálfaðir í lesskilningi ásamt samskiptaþáttunum tali, framsögn, hlustun og ritun í samræmi við Evrópska tungumálarammann. Áhersla er lögð á réttan framburð, uppbyggingu orðaforða og að þjálfa grunnatriði málfræðinnar. Fléttað er inn í kennsluna menningu spænskumælandi landa. Lögð er áherslu á að nemendur geri ljós á eigin ábyrgð í málanáminu og átti sig á mikilvægi eigin frumkvæðis og vinnu.

Þekkingarviðmið

Nemandi skal hafa öðlast þekkingu og skilning á:
  • orðaforða sem nauðsynlegur er til að mæta markmiðum áfangans
  • grundvallarþáttum spænska málkerfisins
  • menningu, samskiptavenjum og siðum spænskumælandi landa og þjóðanna þar sem tungumálið er talað sem móðurmál/fyrsta mál

Leikniviðmið

Nemandi skal hafa öðlast leikni í að:
  • greina talað mál um kunnugleg efni þegar talað er hægt og skýrt
  • geta fylgt einföldum fyrirmælum og skilið kveðjur og kurteisisávörp
  • lesa og greina orð og mjög einfaldar setningar úr daglegu lífi
  • taka þátt í einföldum samræðum og tjá sig um efni sem hann þekkir
  • tjá sig um sjálfan sig, fjölskyldu sína og atburði daglegs lífs með því að beita grunnorðaforða tungumálsins
  • skrifa stuttan, einfaldan texta um sjálfan sig og sitt nánasta umhverfi

Hæfniviðmið

Nemandi skal geta hagnýtt þá almennu þekkingu og leikni sem hann hefur aflað sér til að:
  • hlusta á og greina einfalt talað mál um sjálfan sig og nánasta umhverfi og draga viðeigandi ályktanir
  • rökstyðja og bera saman notkun á einföldum setningum yfir athafnir dagslegs lífs
  • leggja grunn að einföldum samræðum þannig að hann rökstyðji, spyrji og svari einföldum spurningum um kunnug málefni
  • draga ályktanir og nota einföld orðasambönd og setningar til þess að segja frá búsetu sinni og fólki sem hann þekkir
  • skipuleggja frásögn og rökstyðja orðaval í skapandi skrifum
Nánari upplýsingar á námskrá.is