blak
Einingafjöldi: 3
Þrep: 3
Áfanginn er bóklegur, fræðilegur og verklegur. Farið er í helstu grundvallaratriði kennslufræðinnar með það að markmiði að nemandinn læri að nýta þau til að kenna börnum og unglingum undirstöðuatriðin í blaki. Áhersla er á tæknikennslu og kennslu í leikfræði og að nemendur læri helstu leikreglur blaks. Stefnt er að því að nemendur öðlist ákveðna grunnfærni í greininni og lögð er áhersla á mikilvægi þess að leikurinn sé kenndur á leikrænan og skemmtilegan hátt.
Þekkingarviðmið
Nemandi skal hafa öðlast þekkingu og skilning á:
- leikreglum í blaki
- hvernig á að leiðbeina börnum í blaki
- kennslu tækniæfinga í blaki
- skipulagningu blakþjálfunar fyrir yngstu iðkendurna
- fjölbreyttum leik- og tækniæfingum í blaki
Leikniviðmið
Nemandi skal hafa öðlast leikni í að:
- leiðbeina byrjendum í blaki
- nota blak sem skólaíþrótt
- spila blak sér til heilsubótar og ánægju
Hæfniviðmið
Nemandi skal geta hagnýtt þá almennu þekkingu og leikni sem hann hefur aflað sér til að:
- skipuleggja íþróttatíma í blaki fyrir yngstu iðkendurna
- stjórna hópi af börnum
- átta sig á ólíkri getu einstaklinga í hópi og finna þeim verkefni við hæfi
Nánari upplýsingar á námskrá.is