Golf
Einingafjöldi: 3
Þrep: 3
Áfanginn er bóklegur, fræðilegur og verklegur. Farið er í helstu grundvallaratriði kennslufræðinnar með það að markmiði að nemandinn læri að nýta þau til að kenna börnum og unglingum undirstöðuatriðin í golfi. Áhersla er á tæknikennslu og að nemendur læri helstu leikreglur golfs. Stefnt er að því að nemendur öðlist ákveðna grunnfærni í greininni og lögð er áhersla á mikilvægi þess að golfið sé kennt á leikrænan og skemmtilegan hátt.
Þekkingarviðmið
Nemandi skal hafa öðlast þekkingu og skilning á:
- leikreglum í golfi
- hvernig á að leiðbeina börnum í golfi
- kennslu tækniæfinga í golfi
- skipulagningu golfþjálfunar fyrir yngstu iðkendurna
- fjölbreyttum leik- og tækniæfingum í golfi
Leikniviðmið
Nemandi skal hafa öðlast leikni í að:
- leiðbeina byrjendum í golfi
- nota golf sem skólaíþrótt
- spila golf sér til heilsubótar og ánægju
Hæfniviðmið
Nemandi skal geta hagnýtt þá almennu þekkingu og leikni sem hann hefur aflað sér til að:
- skipuleggja íþróttatíma í golfi fyrir yngstu iðkendurna
- stjórna hópi af börnum við iðkun golfs
- átta sig á ólíkri getu einstaklinga í hópi og finna þeim verkefni við hæfi
Nánari upplýsingar á námskrá.is