ÍÞRG2BL03 - Blak

blak

Einingafjöldi: 3
Þrep: 2
Áfanginn er bóklegur, fræðilegur og verklegur. Farið er í helstu grundvallaratriði kennslufræðinnar með það að markmiði að nemandinn læri að nýta þau til að kenna börnum og unglingum undirstöðuatriðin í blaki. Áhersla er á tæknikennslu og kennslu í leikfræði og að nemendur læri helstu leikreglur blaks. Stefnt er að því að nemendur öðlist ákveðna grunnfærni í greininni og lögð er áhersla á mikilvægi þess að leikurinn sé kenndur á leikrænan og skemmtilegan hátt.

Þekkingarviðmið

Nemandi skal hafa öðlast þekkingu og skilning á:
  • leikreglum í blaki
  • hvernig á að leiðbeina börnum í blaki
  • kennslu tækniæfinga í blaki
  • skipulagningu blakþjálfunar fyrir yngstu iðkendurna
  • fjölbreyttum leik- og tækniæfingum í blaki

Leikniviðmið

Nemandi skal hafa öðlast leikni í að:
  • leiðbeina byrjendum í blaki
  • nota blak sem skólaíþrótt
  • spila blak sér til heilsubótar og ánægju

Hæfniviðmið

Nemandi skal geta hagnýtt þá almennu þekkingu og leikni sem hann hefur aflað sér til að:
  • skipuleggja íþróttatíma í blaki fyrir yngstu iðkendurna
  • stjórna hópi af börnum
  • átta sig á ólíkri getu einstaklinga í hópi og finna þeim verkefni við hæfi
Nánari upplýsingar á námskrá.is