ÍÞRG2KN03 - Knattspyrna

knattspyrna

Einingafjöldi: 3
Þrep: 2
Forkröfur: Engar
Áfanginn er bóklegur, fræðilegur og verklegur. Farið er í helstu grundvallaratriði kennslufræðinnar með það að markmiði að nemandinn læri að nýta þau til að kenna börnum og unglingum undirstöðuatriðin í knattspyrnu. Áhersla er á tæknikennslu og kennslu í leikfræði og reglum. Stefnt er að því að nemendur öðlist ákveðna grunnfærni í greininni og lögð er áhersla á mikilvægi þess að leikurinn sé kenndur á leikrænan og skemmtilegan hátt. Nemendum í áfanganum gefst kostur á að undirgangast unglingadómarapróf ( KSÍ ) og standist þeir prófið fá þeir unglingadómararéttindi í greininni.

Þekkingarviðmið

Nemandi skal hafa öðlast þekkingu og skilning á:
  • leikreglum í knattspyrnu
  • hvernig á að leiðbeina börnum í knattspyrnu
  • kennslu tækniæfinga í knattspyrnu
  • skipulagningu knattspyrnuþjálfunar fyrir yngstu aldurshópana
  • fjölbreyttum leik- og tækniæfingum í knattspyrnu

Leikniviðmið

Nemandi skal hafa öðlast leikni í að:
  • leiðbeina byrjendum í knattspyrnu
  • nota knattspyrnu sem skólaíþrótt
  • spila knattspyrnu

Hæfniviðmið

Nemandi skal geta hagnýtt þá almennu þekkingu og leikni sem hann hefur aflað sér til að:
  • skipuleggja íþróttatíma í knattspyrnu
  • stjórna hópi af börnum á knattspyrnuæfingu
  • átta sig á ólíkri getu einstaklinga í hópi og finna þeim verkefni við hæfi
Nánari upplýsingar á námskrá.is