SLÁT1HS05 - Hráefnisfræði-Sláturiðn

Hráefnisfræði - Sláturiðn

Einingafjöldi: 5
Þrep: 1
Forkröfur: Enginn
Markmið áfangans er að nemendur fái undirstöðuþekkingu í ræktun á íslensku búfé, áhrif fóðrunar á gæði og líffærafræði sláturdýra. Í áfanganum er fjallað um uppbyggingu vöðva og vöðvaheiti. Rætt er um heilbrigðis- og gæðamat á kjöti og heilbrigðisstimplun.

Þekkingarviðmið

Nemandi skal hafa öðlast þekkingu og skilning á:
  • uppruna íslensks búfjár og helstu búfjársjúkdómum
  • Áhrifum fóðrunar á gæði kjöts.
  • beinabyggingu búfjár og vöðvategundum
  • tilgangi heilbrigðis- og gæðamats.

Leikniviðmið

Nemandi skal hafa öðlast leikni í að:
  • beita viðurkenndum aðferðum skv. lögum og reglum við kjötmat.
  • framkvæma gæðamat á kjöti.

Hæfniviðmið

Nemandi skal geta hagnýtt þá almennu þekkingu og leikni sem hann hefur aflað sér til að:
  • vinna samkvæmt góðum starfsháttum í sláturhúsum og matvælafyrirtækjum með hliðsjón af lögum og reglugerðum hvað varðar dýravernd, meðferð sláturdýra, flutningi á sláturdýrum og aðferðum við slátrun.
  • vinna samkvæmt gæðakerfi haccp.
Nánari upplýsingar á námskrá.is