slátrun II
Einingafjöldi: 20
Þrep: 2
Í vinnustaðanámi kynnist nemandi vinnu slátrara. Námið fer fram í viðurkenndu sláturhúsi. Nemandi kynnist vinnu við deyðingu á hvers kyns sláturdýrum s.s. sauðfé, geitum, nautgripum, svínum, hrossum, alifuglum. Nemandinn kynnist því hvernig tekið er á móti sláturdýrum og þeirri ábyrgð sem hvílir á slátrurum að dýrin njóti þess aðbúnaðar sem lög og reglur kveða á um, m.a. kröfur um dýravelferð.
Nemandi kynnist því hvernig slátrari vinnur í samræmi við hættugreiningu vinnustaðarins og þær öryggis- og gæðakröfur sem gerðar eru til greinarinnar. Nemandinn kynnist grófbrytjun sláturgripa og hlutun þeirra niður í samræmi við gefna staðla til frekari vinnslu eins og krafist er hverju sinni.
Tilgangur vinnustaðanáms er að efla þekkingu, færni og skilning nema á verkþáttum námsins. Námsferilbók er til leiðsagnar í vinnustaðanáminu og er í eigu nemans. Meistari/tilsjónarmaður merkir reglulega við þá verkþætti sem nemi hefur lokið.
Þekkingarviðmið
Nemandi skal hafa öðlast þekkingu og skilning á:
- deyfingu og deyðingu hvers kyns sláturdýra, þ.m.t. deyfingu, aflífun, stungu og blóðtæmingu, fláningu og afbyrstun eða fiðurlosun/fiðurreytingu, sem og innanúrtöku, snyrtingu og verkun sláturafurða
- flutningi og móttöku sláturdýra að sláturhúsi
- frágangi og meðferð á kjöti á öllum sláturafurðum eftir slátrun s.s. kælingu, pökkun, frystingu, söltun eða aðra geymsluhætti eftir atvikum
- helmingun kjötskrokka, sögun og grófbrytjun afurða eftir gefnum stöðlum og pökkun í viðeigandi umbúðir
- innihaldslýsingum og merkingum afurða
- mælingu sýrustigs og kjötmati
- vinnu við frágang og förgun úrgangs
- vinnu í samræmi við kröfur um góða starfshætti, innra eftirlit, hreinlætis- og örverufræði, hættugreiningu, gæðastaðla og öryggiskröfur sláturhúsa kjötvinnslustöðva
- kröfum um hættumat slátrara
- forvörnum og viðbragðsáætlunum við óhöppum
Leikniviðmið
Nemandi skal hafa öðlast leikni í að:
- vinna að deyfingu og deyðingu hvers kyns sláturdýra, þ.m.t. deyfingu, aflífun, stungu og blóðtæmingu, fláningu og afbyrstun eða fiðurlosun/fiðurreytingu, sem og innanúrtöku, snyrtingu og verkun sláturafurða
- vinna að móttöku sláturdýra að sláturhúsi
- vinna að helmingun kjötskrokka, sögun og grófbrytjun afurða eftir gefnum stöðlum og pökkun í viðeigandi umbúðir
- vinna að frágangi og meðferð á kjöti og öllum sláturafurðum eftir slátrun s.s. kælingu, pökkun, frystingu, söltun
- mæla sýrustig í kjöti, meta galla og meta kjöt
- meta ástand og gæði hráefnis með hliðsjón af umbúðamerkingum, hitastigi og almennum gæðakröfum
- setja réttar innihaldslýsingar og merkingar á afurðir sem fara í áframhaldandi sölu eða vinnslu
- vinna við frágang og förgun úrgangs
- vinna með vélar og handverkfæri sem tengjast starfinu, annast umhirðu þeirra og eftirlit
Hæfniviðmið
Nemandi skal geta hagnýtt þá almennu þekkingu og leikni sem hann hefur aflað sér til að:
- skipuleggja móttöku sláturdýra að sláturhúsi og tryggja að móttaka sé í samræmi við reglur og reglugerðir um flutninga og móttöku búfjár s.s. er varðar dýravelferð, rými, öryggi, gæði, hreinlæti og sóttvarnir
- vinna sjálfstætt að deyfingu og deyðingu hvers kyns sláturdýra, annast framkvæmd og stjórnun allra verkþátta s.s. deyfingu, aflífun, stungu og blóðtæmingu , fláningu, afbyrstun eða fiðurlosun/fiðurreytingu, svo og innanúrtöku, snyrtingu og verkun sláturafurða
- annast frágang og meðferð á kjöti og öllum sláturafurðum eftir slátrun s.s. kælingu, pökkun, frystingu, söltun eða aðra geymsluhætti eftir atvikum og undirbýr fyrir frekari vinnslu á þann hátt að kælikeðjan rofnar ekki
- annast helmingun kjötskrokka, sögun og grófbrytjun afurða eftir gefnum stöðlum og pökkun í viðeigandi umbúðir
- taka þátt í umsjón með frágangi á öllum úrgangi frá sláturhúsum og sjá til þess að frágangur og förgun úrgangs sé í samræmi við umhverfiskröfur greinarinnar, lög og reglur sem gilda um þau mál
- taka þátt í skipulagningu verkferla með tilliti til viðfangsefna við slátrun, gera verkefnalista, forgangsraða þeim og undirbúa vinnusvæði
Nánari upplýsingar á námskrá.is