ÍÞRÓ1SU01 - Lýðheilsa með áherslu á sund

Sund

Einingafjöldi: 1
Þrep: 1
Forkröfur: Engar
Ný menntastefna er höfð til grundvallar og grunnþættir menntunar eru hafðir að leiðarljósi. Æfðar eru mismundandi sundaðferðir, áhersla verður lögð á tæknina að baki hverri sundaðferð og hvernig má efla úthald.

Þekkingarviðmið

Nemandi skal hafa öðlast þekkingu og skilning á:
  • að sundið getur verið skemmtileg tómstund
  • að með því að stunda sund er hægt að styrkja líkamann, úthald og þrek
  • að sund er holl og góð hreyfing fyrir líkamann

Leikniviðmið

Nemandi skal hafa öðlast leikni í að:
  • að koma sér yfir laug með eða án hjálpartækja
  • að beita tækni varðandi fótatök
  • að beita tækni varðandi handahreyfingar
  • að beita tækni varðandi legu
  • að beita tækni varðandi öndun
  • að bæta úthald sitt
  • að ná valdi á ýmsum reglum sem gilda á sundstöðum

Hæfniviðmið

Nemandi skal geta hagnýtt þá almennu þekkingu og leikni sem hann hefur aflað sér til að:
  • fara í sund og synda það sund sem hæfir
  • synda sér til heilsubótar
  • að æfa sund hjá sundfélagi
  • fara eftir reglum sem gilda á sundstöðum
Nánari upplýsingar á námskrá.is