MLSU1RS03 - Rafsuða

Rafsuða

Einingafjöldi: 3
Þrep: 1
Forkröfur: Engar
Nemendur kunni skil á suðuaðferðum, efni og suðuvírum. Þeir geti metið suðuferlið og öryggisatriði. Soðin verður plötusuða í suðustöðunum PA, PB, PD, PF og PG með pinnasuðu samkvæmt ÍST EN 287-1. Nemandinn læri að skrá grunnatriði suðuferilslýsinga. Færni miðast við C flokk ÍST EN 25 817 um kverksuðu.

Þekkingarviðmið

Nemandi skal hafa öðlast þekkingu og skilning á:
  • suðu með rið og jafnstraum
  • suðu með plús- og mínuspól
  • suðuaðferðum, afköstum og hagkvæmni
  • mismunandi aðferðum og hættu á suðugöllum
  • ljósboga- tómgangsspennu
  • stöðlum um suður, galla, suðustöðum, hæfnisvottun suðumanna, merkingu rafsuðuvíra Íst en 22 553 staðli um merkingar stáls

Leikniviðmið

Nemandi skal hafa öðlast leikni í að:
  • vinna með suðubúnað
  • stilla suðuvélar
  • sjóða saman hluti í ýmsum stöðum
  • •sjóða mismunandi a-mál
  • sjóða samkvæmt suðuferli
  • sjóða í suðustöðum pa, pb og pf

Hæfniviðmið

Nemandi skal geta hagnýtt þá almennu þekkingu og leikni sem hann hefur aflað sér til að:
  • velja hagkvæma suðuaðferð við mismunandi verk
  • útskýra staðlaðar merkingar pinnasuðuvíra
  • meta algengustu suðugalla og ástæður þeirra
  • meta suður út frá stöðluðum kröfum um útlit
  • flokka suður í gæðaflokka
Nánari upplýsingar á námskrá.is