RAFM1GR05 - Rafmagnsfræði 1

Rafmagnsfræði-grunnáfangi

Einingafjöldi: 5
Þrep: 1
Forkröfur: Engar
Fjallað er um grundvallarhugtök og lögmál í rafmagnsfræði. Hugtökin straumur, spenna, viðnám, afl og orka eru kynnt. Fengisr er við lögmál, hugtök og grundvallaratriði með verklegum æfingum. Mismunandi spennugjafar verða teknir fyrir og helstu merkingar og tákn. Farið er yfir helstu hættur sem fylgja rafmagni og varúðarráðstafanir gagnvart þeim.

Þekkingarviðmið

Nemandi skal hafa öðlast þekkingu og skilning á:
  • ohms lögmálinu
  • helstu hugtökum rafmagnsfræðinnar
  • kirchoffs lögmálinu
  • lögmáli afls og orku
  • fjölsviðsmælum til sönnunar á útreikningum rafmagnsrása
  • straum, spennu og viðnámi í rað- og hliðtengdum rásum
  • hættum er fylgja rafmagni og varnarráðstöfunum gagnvart þeim

Leikniviðmið

Nemandi skal hafa öðlast leikni í að:
  • umgangast fjölsviðsmæla
  • tengja einfaldar rafmagnsrásir
  • nota formúlur við út reiknað á straum, spennu og viðnám
  • umgangast spennugjafa

Hæfniviðmið

Nemandi skal geta hagnýtt þá almennu þekkingu og leikni sem hann hefur aflað sér til að:
  • reikna út og leysa verkefni um straum, spennu, viðnám og afl í rafmagnsrásum
  • meta ástand rafhlaða og hirða um þær
  • tengja fjölsviðsmæla í rafrásir til að mæla straum, spennu og viðnám
  • teikna upp rafrásir og spennugjafa og útskýra í skýrsluformi mismunandi straum, spennu og viðnám út frá tengingum
  • umgangast rafkerfi af öryggi og með viðeigandi vaúðarráðstöfunum gagnvart mögulegri hættu
Nánari upplýsingar á námskrá.is