EFNM2PL03 - Efnisfræði málmiðna-plastefni

Efnisfræði málmiðna-plastefni

Einingafjöldi: 3
Þrep: 2
Forkröfur: EFNM1MT05 og RENN2MT05
Að loknu námsefni áfangans eiga nemendur að hafa fræðst um sögu plastsins, helstu kosti og galla plastefna til notkunnar í málmiðnaði og hafa gert lítilsháttar tilraunir á vatnsdrægni og málbreytingum þeim er verða á íhlutum vélbúnaðar sem smíðaðir eru úr algengustu plastefnum á hverjum tíma. Einnig eru nemandanum kynntar helstu framleiðsluaðferðir á plastefnum og möglega nýjustu efni sem þar eru þróuð og skoðuð endurvinnsla og förgun. Nemandinn skal í áfanganum kynnast meðferð og vinnslu plastefna með annaðhvort verklegu námi innan skóla eða heimsókn í fyrirtækji í plastiðnaði. Nemendur framkvæmi samsetningar á plaströrum með límingum og suðum. Nemendur steypi hluti úr trefjaplasti Einnig skal kynna nemendum eiginleika áls, eirs og mjúkmelma til notkunar í vélbúnaði og geti þeir borið saman eiginleika þessara efna við plastefnin.

Þekkingarviðmið

Nemandi skal hafa öðlast þekkingu og skilning á:
  • algengustu nöfn plastefna og skýringar á þeim
  • helstu tegundir plasts og eiginleika þeirra
  • meginatriði varðandi endurvinnslu á plasti
  • helstu staðla um plast
  • hvaða plastefni standast kröfur matvælaiðnaðar samk, stöðlum
  • hvar nota skal plastefni í vélbúnaði
  • helstu afbrigðum eirmelma, kosti þeirra og galla
  • líklegu notkunarsviði þeirra málma sem um er fjallað

Leikniviðmið

Nemandi skal hafa öðlast leikni í að:
  • velja plast og eða annað efni sem notast skal til smíða á fóðringum eða samsetningum á vélbúnaði
  • velja efni er hæfir þörf hverju sinni
  • ta sótt efnisupplýsingar í staðla og nýtt þær

Hæfniviðmið

Nemandi skal geta hagnýtt þá almennu þekkingu og leikni sem hann hefur aflað sér til að:
  • meta hvaða plastefni á og eða má nota til ýmissa algengra verkefna er varða viðhald og uppsetningu vélbúnaðar við margvíslegar aðstæður.
  • þekkja þau frávik er verða í mældum stærðum íhluta vegna umhverfisáhrifa og meta efnisval og málvik íhluta samkvæmt því
  • setja saman plastlagnir með suðu og límingum
Nánari upplýsingar á námskrá.is