Vélfræði 1
Einingafjöldi: 5
Þrep: 1
Forkröfur: Engar
Nemendur öðlast fræðilega og hagnýta grunnþekkingu í vélfræði. Fjallað er um mismunandi form orku, afls og orkunýtingu til að auka skilning á þessum hugtökum. Lögmál varmafræðinnar um óforgengileika orkunnar eru kynnt ásamt SI-mælieiningakerfinu. Eldsneytisnotkun bulluvéla og orkuforði. Fjallað er um nýtni bulluvéla, pV-línurit og pt-línurit. Meðalþrýstingur pmi fundinn í pV-línuriti með lóðlínuaðferðinni. Reiknað framleitt afl dísilvéla. Samhengi þrýstings og hitastigs.
Þekkingarviðmið
Nemandi skal hafa öðlast þekkingu og skilning á:
- þeim þáttum sem hafa áhrif á aflframleiðslu véla
- samhengi aflframleiðslu og hinna ýmsu stærða bulluvéla
- aðferðum við mælingar á meðalþrýstingi
- lögmálum varmafræðinnar um varðveislu orkunnar
- aflmælingum véla með notkun hemla
- þjöppunarhlutfalli og rúmmálamælingum á vélum
- samhengi aflframleiðslu, álags og hvernig inngrip í aflframleiðsluna hefur áhrif á starfsemi vélarinnar
- eldsneytisnotkun, orkunýtingu og orkutapi
- vinnslu á fljótandi eldsneyti og helstu eiginleikum þess
Leikniviðmið
Nemandi skal hafa öðlast leikni í að:
- snúa formúlum
- lesa út úr ritmynd vélar
- mæla ritmyndir og finna pi, pmax, pþjapp
- leiða út formúlur sem fyrir koma í námsefninu og beita þeim við lausn verkefna
- reikna út forðaradíus
Hæfniviðmið
Nemandi skal geta hagnýtt þá almennu þekkingu og leikni sem hann hefur aflað sér til að:
- útskýra samhengi þrýstings og hitastigs og finna þjöppunarhlutfall
- nýta ritmyndir til einfaldra bilanagreininga
- setja fram útreikning á skipulagðan og snyrtilegan hátt
- útskýra gildi breyta í formúlum
Nánari upplýsingar á námskrá.is