Vélstjórn 2
Einingafjöldi: 7
Þrep: 1
Forkröfur: VÉLS1AA05
Nemendur fara yfir eldsneyti bulluvéla, mismunandi tegundir eldsneytis og eiginleika. Mismunandi brunahol dísilvéla. Kæling bulluvéla, rekstur og viðhald kælivatns- og kælisjókerfa. Eldsneytis- og rafbúnaður Ottóbulluvélarinnar. Aflyfirfærslan frá aflvél og skrúfu, rekstur og viðhald. Undirstöður og afrétting aðal- og hjálparvéla í skipum. Skipsskrúfan og tengsli. Stjórnun gangstefnu skipa. Austur-, kjölfestu-, sjó- og ferskvatnskerfi til almennra nota. Afgas-, vökvavindukerfi og stýrisvél. Farið verður yfir smurolíukerfi og smurolíur. Upphitun skipa. Brunavarnakerfi í bátum og skipum. Hersla með vökvatjökkum. Námið skiptist í verklegan og bóklegan hluta þannig að fjórar bóklegar kennslustundir koma á móti fjórum verklegum. Í verklegum tímum er áhersla lögð á umhirðu búnaðar í vélarúmi. Undirbúningur undir gangsetningu, keyrslu, stöðvun og frágang dísilvéla. Áhersla er lögð á bilanagreiningu og viðgerðir. Hluti kennslunnar fer fram í vélarúmshermi skólans.
Þekkingarviðmið
Nemandi skal hafa öðlast þekkingu og skilning á:
- eldsneytisbúnaði dísil- og ottó véla auk loftaðfærslubúnaði og algengustu eldsneytisgerðum
- smurolíum og smurolíukerfum
- kæliþörf brunavéla og þeim búnaði sem þarf við kælingu
- aflyfirfærslum véla, tengslum og skrúfubúnaði skipa
- afréttingum véla og vélbúnaðar
- austurkerfum, sjókerfum, brunakerfum og ferskvatns- og hitakerfum til almennra nota
- gangsetningu, keyrslu, stöðvun og frágangi dísilvéla
- bilanagreiningu og viðgerðum
- herslu bolta með mismunandi búnaði
- rekstri og viðhaldi fyrrnefndra kerfa
- öryggismálum varðandi vinnu og umgengni véla og vélbúnaðar
Leikniviðmið
Nemandi skal hafa öðlast leikni í að:
- útskýra vinnumáta skiptiskrúfu, forþjöppu, stýrisvéla, og vökvavindukerfa
- fjalla um og útskýra öll vélakerfi sem talin eru upp í þekkingarviðmiðunum
- meta aðferðir við afréttingar
- undirbúa keyrslu véla og vélbúnaðar
- lesa úr teikningum og herslutöflum
- fara eftir öryggisatriðum og virða þau
Hæfniviðmið
Nemandi skal geta hagnýtt þá almennu þekkingu og leikni sem hann hefur aflað sér til að:
- umgangast og meta síubúnað í eldsneytis- og skolloftskerfum
- taka olíusýni, til þess að segju og rakamæla það
- hreinsa og yfirfara varmaskipta
- taka í sundur skiptiskrúfu
- rétta af tengi með klukkum
- umgangast grófsíur í austur- og sjókerfum
- gangsetja, keyra og bilanagreina vélar
- nota herslumæla
- leiðbeina öðrum um öryggismál
Nánari upplýsingar á námskrá.is