EÐLI1VM03 - Eðlisfræði fyrir málmiðnir

Eðlisfræði fyrir vélstjóra og málmiðnir

Einingafjöldi: 3
Þrep: 1
Í áfanganum er lagður grunnur að þekkingu nemenda á eðlisfræðilegum lögmálum. Á meðal viðfangsefna eru: Vektorútreikningur, hraði, hröðun, kasthreyfing, gröf af hreyfingu og túlkun þeirra, fallhreyfing, kraft- og þyngdarlögmál Newtons og tregðulögmálið, aflfræði, kraftvægi jafnvægi og áhrif núningskrafta, samband vinnu og ýmissa orkuforma, orka og varðveisla hennar, hiti og hreyfing efniseinda, hitamælar, hitaþensla og varmaskipti. Verklegi þátturinn er æfður í öðrum greinum (s.s. kælitækni, stýritækni, véltækni).

Þekkingarviðmið

Nemandi skal hafa öðlast þekkingu og skilning á:
  • útreikningum vektora
  • á gröfum fyrir hreyfingu
  • lögmálum newtons
  • aflfræði, jafnvægi, kraftvægi og núningi
  • vinnu og afli
  • hitamælum, hitaþenslu og varmaskiptum

Leikniviðmið

Nemandi skal hafa öðlast leikni í að:
  • leysa útreikninga á vektorum, og aflfræði
  • úskýra jafnvægi, kraftvægi og núning
  • útskýra og reikna út afl og vinnu
  • útskýra þenslu í vökvum og föstum efnum
  • útskýra hvernig þyngdarpunktur færist til í efnum við vinnslu þeirra

Hæfniviðmið

Nemandi skal geta hagnýtt þá almennu þekkingu og leikni sem hann hefur aflað sér til að:
  • setja upp og vinna með vektora og afl
  • vinna með jafnvægi og kraftvægi hluta út frá eigin þyngd og viðbótarkröftum
  • koma í veg fyrir skemmdir á búnaði vegna þenslu hluta og vökva
  • sanna með tilraunum vinnu og afl
  • finna þyngdarpunkt í hlutum með mælingum
Nánari upplýsingar á námskrá.is