MLSU3TI03 - Hlífðargassuða TIG

TIG-suða

Einingafjöldi: 3
Þrep: 3
Forkröfur: MLSU1RS03, MLSU1LS03 og MLSU2MI03
Nemendur læri að undirbúa og sjóða TIG-suðu á stál og ryðfrítt stál með gegnumsuðu í 1 – 3mm plötu í suðustöðunum PA, PC og PF, í gæðaflokki C samkvæmt ÍST EN 25 817. Þeir læri að sjóða rör í láréttir og lóðréttri suðustöðu og þekki notkun bakgass. Nemendur geti skipulagt suðuverkefni með kröfum um gæði, öryggi og umhverfisþætti. Nemendur geti soðið eftir suðuferilslýsingum.

Þekkingarviðmið

Nemandi skal hafa öðlast þekkingu og skilning á:
  • suðubúnaði
  • gasi og gastegundum sem notaðar eru við suðu á ryðfríu stáli
  • hlutverk hlífðargassins og réttri stillingu þess
  • mismunandi gerðum rafskauta
  • yfirborðshreinsun fyrir og eftir suðu
  • öryggismálum

Leikniviðmið

Nemandi skal hafa öðlast leikni í að:
  • stilla suðubúnað þannig að hann henti efni og fasi
  • velja vír eftir efni og fasi
  • velja skaut, hulsu og stilla gasflæði eftir efni og straum
  • sjóða í mismunandi suðustöðum
  • nota suðuferilslýsingar

Hæfniviðmið

Nemandi skal geta hagnýtt þá almennu þekkingu og leikni sem hann hefur aflað sér til að:
  • sjóða saman vinnslustykki með mismunandi þykkt og fasviki
  • sjóða lóðrétt og lárétt í suðustöðum pa, pc og pf
  • sjóða eftir suðuferlum
  • mæla og skrá suðuferli suðuverkefnisins
  • fylgja reglum um öryggismál
Nánari upplýsingar á námskrá.is