GÆST3MV05 - Gæða-, viðhalds- og öryggistjórnun

Gæðastjórnun í málmi og vélstjórn

Einingafjöldi: 5
Þrep: 3
Forkröfur: EFNM1MT05, VÉLS1AA05 og VÉLS1AB07
Í þessum áfanga kynnast nemendur grundvallaratriðum viðhaldsstjórnunar, gæða- og viðhaldskerfa og öryggisstjórnunarkerfa. Þeir öðlast haldgóða þekkingu í viðhaldsstjórnun, gæðastjórnun og öryggisstjórnunarkerfum. Þeir læra að setja upp gæðahandbók og gera viðhaldsáætlanir vegna gæðaeftirlits og fyrirbyggjandi viðhalds. Nemendur öðlist þekkingu og skilning á gildi gæðakerfa og átt í skipulögðu gæðastarfi á vinnustað, setja upp einfalt gæðakerfi á grunni viðhaldsstjórnunar, og setja upp verkþáttarit, reikna út heildar verktíma og finna krítísku línuna (cpm). Þeir læri að tileinka sér kröfur alþjóðasamþykkta um öryggisstjórnunarkerfa að því er lýtur að starfsskipulagi í vélarúmi skipa.

Þekkingarviðmið

Nemandi skal hafa öðlast þekkingu og skilning á:
  • hlutverki, ábyrgð, starfssviði og störfum vélstjóra á stærri skipum
  • hlutverki og starfsháttum þeirra sem hafa með höndum eftirlit með skipum og varnir gegn mengun sjávar og þeim reglum sem fjalla um eftirlit með skipum og mannvirkjum á landi.
  • uppbyggingu og markmiðum mismunandi viðhaldskerfa og viðhaldsstjórnunar.
  • tilgangi, notkun og uppbyggingu viðhaldsforrita fyrir vélbúnað.
  • bilanaviðhaldi, spáviðhald tímastýrt viðhald og viðhald byggt á ástandsskoðun
  • helstu tækjum til ástandsskoðana og fyrir byggjandi viðhalds eins og titrings-, þykktar-, og útleiðslumæla.
  • brotsárum málma og „ndt“ prófunum
  • uppbyggingu og markmiðum verkþáttarita,(cpm)
  • grundvallarhugtökum gæðastjórnunar og gæðavottunar
  • gæðakerfum, gæðahandbókum og gæðavottun fyrirtækja
  • öryggisstjórnunarkerfum, þ.m.t. ism kóðans og þeim kröfum sem hann gerir til vélstjóra
  • helstu aðferðum við tæringavarnir í skipum og á hverju þær byggja

Leikniviðmið

Nemandi skal hafa öðlast leikni í að:
  • útskýra hvað er átt er við með viðhaldsstjórnun, gæðastjórnun og öryggisstjórnunarkerfum.
  • setja upp gæðastjórnunarhandbók og gera viðhaldsáætlanir vegna gæðaeftirlits og viðhalds.
  • setja upp verkþáttarit, reikna út heildar verktíma og finna krítísku línuna.
  • útskýra kröfur alþjóðasamþykkta um öryggisstjórnunarkerfi að því er lýtur að starfsskipulagi í vélarúmi skipa.

Hæfniviðmið

Nemandi skal geta hagnýtt þá almennu þekkingu og leikni sem hann hefur aflað sér til að:
  • taka þátt í skipulögðu gæðastarfi á vinnustað.
  • taka þátt í að setja upp og skipuleggja viðhalds- og öryggiskerfi um borð í skipum.
Nánari upplýsingar á námskrá.is