Gæðastjórnun í málmi og vélstjórn
Einingafjöldi: 3
Þrep: 3
Forkröfur: EFNM1MT05, VÉLS1AA05 og VÉLS1AB07
Í þessum áfanga kynnast nemendur grundvallaratriðum viðhaldsstjórnunar, gæða- og viðhaldskerfa og öryggisstjórnunarkerfa. Þeir öðlast haldgóða þekkingu í viðhaldsstjórnun, gæðastjórnun og öryggisstjórnunarkerfum. Þeir læra að setja upp gæðahandbók og gera viðhaldsáætlanir vegna gæðaeftirlits og fyrirbyggjandi viðhalds. Nemendur öðlist þekkingu og skilning á gildi gæðakerfa og átt í skipulögðu gæðastarfi á vinnustað, setja upp einfalt gæðakerfi á grunni viðhaldsstjórnunar, og setja upp verkþáttarit, reikna út heildar verktíma og finna krítísku línuna (cpm). Þeir læri að tileinka sér kröfur alþjóðasamþykkta um öryggisstjórnunarkerfa að því er lýtur að starfsskipulagi í vélarúmi skipa.
Þekkingarviðmið
Nemandi skal hafa öðlast þekkingu og skilning á:
- hlutverki, ábyrgð, starfssviði og störfum vélstjóra á stærri skipum
- hlutverki og starfsháttum þeirra sem hafa með höndum eftirlit með skipum og varnir gegn mengun sjávar og þeim reglum sem fjalla um eftirlit með skipum og mannvirkjum á landi.
- uppbyggingu og markmiðum mismunandi viðhaldskerfa og viðhaldsstjórnunar.
- tilgangi, notkun og uppbyggingu viðhaldsforrita fyrir vélbúnað.
- bilanaviðhaldi, spáviðhald tímastýrt viðhald og viðhald byggt á ástandsskoðun
- helstu tækjum til ástandsskoðana og fyrir byggjandi viðhalds eins og titrings-, þykktar-, og útleiðslumæla.
- brotsárum málma og „ndt“ prófunum
- uppbyggingu og markmiðum verkþáttarita,(cpm)
- grundvallarhugtökum gæðastjórnunar og gæðavottunar
- gæðakerfum, gæðahandbókum og gæðavottun fyrirtækja
- öryggisstjórnunarkerfum, þ.m.t. ism kóðans og þeim kröfum sem hann gerir til vélstjóra
- helstu aðferðum við tæringavarnir í skipum og á hverju þær byggja
Leikniviðmið
Nemandi skal hafa öðlast leikni í að:
- útskýra hvað er átt er við með viðhaldsstjórnun, gæðastjórnun og öryggisstjórnunarkerfum.
- setja upp gæðastjórnunarhandbók og gera viðhaldsáætlanir vegna gæðaeftirlits og viðhalds.
- setja upp verkþáttarit, reikna út heildar verktíma og finna krítísku línuna.
- útskýra kröfur alþjóðasamþykkta um öryggisstjórnunarkerfi að því er lýtur að starfsskipulagi í vélarúmi skipa.
Hæfniviðmið
Nemandi skal geta hagnýtt þá almennu þekkingu og leikni sem hann hefur aflað sér til að:
- taka þátt í skipulögðu gæðastarfi á vinnustað.
- taka þátt í að setja upp og skipuleggja viðhalds- og öryggiskerfi um borð í skipum.
Nánari upplýsingar á námskrá.is