Starfsþjálfun í matvælaiðn
Einingafjöldi: 10
Þrep: 2
Forkröfur: Starfsþjálfun 1
Starfsþjálfun matvælaiðnaðar er samtals 22 einingar sem skiptist í þrjá áfanga. Þeir eru fimm, ellefu og sex einingar og eru á mismunandi þrepum. Nemendur velja einn vinnustað til að taka allt starfsnámið. Fyrir hverja einingu í starfsþjálfun þarf nemandi að vinna sem svarar þremur vinnudögum.
Í starfsþjálfun öðlast nemandinn aukna þekkingu, leikni og hæfni í öllum almennum störfum vinnslunnar undir leiðsögn fagaðila. Þá æfir hann sig í notkun helstu tækja og búnaðar á vinnustaðnum.
Þekkingarviðmið
Nemandi skal hafa öðlast þekkingu og skilning á:
- vinnustaðamenningu og verksviðum vinnustaðarins
- helstu öryggis- og umhverfisatriðum sem snerta vinnustaðinn og starfsstöðvar hans
- áhöldum og tækjum sem notuð eru á vinnustaðnum gæðakerfi vinnustaðarins
- gildi lausnamiðaðra samskipta og mikilvægi sveigjanleika, virðingar og aðlögunarhæfni í starfi
- vinnslu við vélar
- mikilvægi þrifa og þess að framkvæma sýnatökur
- skráningakerfi á rekjanleika og framleiðsluferli
- hvernig tryggja megi matvælaöryggi við framleiðslu matvæla
Leikniviðmið
Nemandi skal hafa öðlast leikni í að:
- taka tilsögn og fylgja ákveðnum starfsreglum og/eða -ferlum
- vinna í samræmi við gildi og stefnu vinnustaðar
- vinna með hliðsjón af viðurkenndu verklagi
- vinna í samræmi við viðurkenndar öryggisreglur og öryggisbúnað á vinnustaðnum
- sýna fram á gildi lausnamiðaðra samskipta og mikilvægi sveigjanleika, virðingar og aðlögunarhæfni í starfi
- að umgangast stærri vélar við vinnslu
Hæfniviðmið
Nemandi skal geta hagnýtt þá almennu þekkingu og leikni sem hann hefur aflað sér til að:
- nýta algengustu áhöld og tæki innan atvinnugreinarinnar
- fylgja öryggisráðstöfunum á vinnustað
- skilja mikilvægi heilsuverndar í atvinnugreininni
- skilja mikilvægi góðra samskipta og samvinnu á vinnustað
- sinna vel þeim verkefnum sem honum eru falin
- kynnast notkun og viðhaldi á áhöldum og tækjum
- beita sér rétt við vinnu
- sýna þjónustulund og góða umgengni og umhirðu á vinnustað
- vaxa og efla sig í starfi
- greina ábyrgð sína sem virkur starfsmaður í fyrirtækinu og starfa í samræmi við hana
- meta kröfur til hreinlætis á vinnustað
- bregðast við frávikum á vinnustaðnum
- eiga lausnarmiðuð samskipti við þá sem hann veitir þjónustu og við samstarfsaðila sína
- sýna frumkvæði og sjálfstæði í vinnubrögðum
Nánari upplýsingar á námskrá.is