Vinnustaðanám fiskiðja
Einingafjöldi: 5
Þrep: 2
Forkröfur: Engar
Í áfanganum er lögð áhersla á að nemendur kynnist starfsemi fiskvinnslu í sem víðustu mynd. Nemendum gefst tækifæri á að læra og fá þjálfun sem þarf til að uppfylla þá þætti sem getið er um hér að neðan; þekkingar-, leikni- og hæfniviðmið. Verkstjóri/umsjónarmaður í fyrirtækinu ber ábyrgð á að nemandinn fái þau námstækifæri og þá þjálfun sem um ræðir hverju sinni.
Þekkingarviðmið
Nemandi skal hafa öðlast þekkingu og skilning á:
- löndun og móttöku
- vinnslu aukaafurða þ.m.t. skreiðarvinnslu
- vinnslu við vélar
- almennum fiskvinnslustörfum frá móttöku hráefnis til útskipunar afurða
- útskipunar- og flutningsferli
- mikilvægi þrifa og þess að framkvæma sýnatökur
- viðhaldsstörf á fiskvinnsluvélum- og tækjum
- lyftarastarfinu
- gæðaskoðun innanhúss við snyrtingu og pökkun
- störfum gæðateymis og reglulegum fundum þess
- gæða- og umhverfisstefnu
- öryggiskröfum varðandi framleiðslu og eigið öryggi
- slysa- og atvikaskráningu
- skráningakerfi á rekjanleika og framleiðsluferli
- þeim skrifstofustörfum sem sinna þarf í fiskvinnslu
- hvernig bókhaldi er háttað og unnið innan fiskvinnslu
Leikniviðmið
Nemandi skal hafa öðlast leikni í að:
- að sinna almennum fiskvinnslustörfum frá móttöku hráefnis til útskipunar afurða
- að umgangast stærri vélar við vinnslu
- að greina frá vinnslu aukaafurða
- að umgangast lyftara og starfa í kringum hann
- að þrífa og framkvæma sýnatökur
- að fylgja gæða- og umhverfisstefnu
- gæðaskoðun innanhúss við snyrtingu og pökkun
- öryggiskröfum varðandi framleiðslu og eigið öryggi
- að tilkynna og skrá óhöpp og slys
- notkun á skráningakerfi varðandi rekjanleika og framleiðsluferli
- að greina frá því hvernig bókhaldi er háttað og unnið innan fiskvinnslu
Hæfniviðmið
Nemandi skal geta hagnýtt þá almennu þekkingu og leikni sem hann hefur aflað sér til að:
- hafa yfirsýn yfir fiskvinnslu frá upphafi ferlis til enda þess
- fara eftir gæða- og umhverfisstefnu
- fara eftir öryggiskröfum varðandi framleiðslu og eigið öryggi
- sýna frumkvæði í störfum gæðateymis
- starfa á ábyrgan hátt í kringum vélar og tæki
- geta sinnt þrifum og framkvæmt sýnatökur samkvæmt verkferlum
- gera sér grein fyrir mikilvægi skráningakerfis á rekjanleika og framleiðsluferli
- geta greint frá gæðaskoðun innanhúss við snyrtingu og pökkun
- geta tekið þátt í þeim viðhaldsstörfum sem falla til
- geta gert grein fyrir því hvernig bókhaldi er háttað innan fiskvinnslu
- bera virðingu fyrir þeim fjölda starfa sem unnin eru innan fiskvinnslufyrirtækja
- sýna frumkvæði og sjálfstæði í vinnubrögðum
Nánari upplýsingar á námskrá.is