Vinnustaðanám kjötvinnsla
Einingafjöldi: 5
Þrep: 2
Forkröfur: Engar
Í áfanganum er lögð áhersla á að nemendur kynnist starfsemi kjötvinnslu í sem víðustu mynd. Nemendum gefst tækifæri á að læra og fá þjálfun sem þarf til að uppfylla þá þætti sem getið er um hér að neðan; þekkingar-, leikni- og hæfniviðmið. Verkstjóri/umsjónarmaður í fyrirtækinu ber ábyrgð á að nemandinn fái þau námstækifæri og þá þjálfun sem um ræðir hverju sinni.
Þekkingarviðmið
Nemandi skal hafa öðlast þekkingu og skilning á:
- hvernig tryggja megi matvælaöryggi við framleiðslu matvæla
- mikilvægi persónulegs hreinlætis starfsmanna matvælavinnslu
- krossmengun og þýðingu hennar í matvælaframleiðslu
- flæði framleiðslu og helstu atriði sem ber að varast til að koma í veg fyrir krossmengun
- helstu sjúkdóma sem berast með matvælum og þær örverur sem valda þeim
- haccp og hvað það felur í sér
- flæðiritum, hættugreiningu og verklýsingu fyrir afurð
- helstu atriðum er varða merkingar matvæla
- datablöðum og samræmisyfirlýsingum frá birgjum
- helstu ofnæmisvöldum í matvælum og reglum varðandi merkingar þeirra
- helstu þáttum sem ráða geymsluþoli matvæla
- hvað forvarnir og innra eftirlit í matvælafyrirtækjum felur í sér
- muninum á innri og ytri úttektum í matvælafyrirtækjum
- almennu verklagi við þrif í matvælavinnslu og hvernig meta megi árangur þrifa
- mikilvægi rekjanleika og tengingu við innkallanir/afturkallanir matvæla
- svæðaskiptingu í matvælavinnslum, t.d. þar sem eru bæði framleidd matvæli tilbúin til neyslu og matvæli sem elda þarf fyrir neyslu
- helstu öryggisatriðum varðandi áhöld, vélar og efni sem notuð eru í matvælavinnslu
Leikniviðmið
Nemandi skal hafa öðlast leikni í að:
- setja upp innihaldslýsingu fyrir afurð
- að reikna út næringargildi fyrir afurð
- að tryggja matvælaöryggi við framleiðslu matvæla
- að fylgja flæðiritum og verklýsingum
- persónulegu hreinlæti starfsmanna matvælavinnslu
- að merkja matvæli samkvæmt reglum og ferlum um rekjanleika og tengingu við innkallanir matvæla
- að fylgja helstu öryggisatriðum varðandi áhöld, vélar og efni sem notuð eru í matvælavinnslu
- að fara eftir gæðakerfinu haccp við störf
- þátttöku í innri úttektum
- að skoða datablöð og samræmisyfirlýsingar frá birgjum
- að leggja mat á geymsluþol matvæla
- að fylgja almennu verklagi við þrif í matvælavinnslu
Hæfniviðmið
Nemandi skal geta hagnýtt þá almennu þekkingu og leikni sem hann hefur aflað sér til að:
- tryggja matvælaöryggi við framleiðslu matvæla
- tileinka sér persónulegt hreinlæti við matvælavinnslu
- koma í veg fyrir krossmengun
- geta tekið virkan þátt í vinnu í kringum gæðakerfi haccp
- geta merkt vörur í samræmi við reglur
- geta tekið þátt í innri úttektum í matvælafyrirtækjum
- geta sett upp innihaldslýsingu og reiknað út næringargildi fyrir afurð
- fara eftir helstu öryggisreglum varðandi áhöld, vélar og efni
- leggja mat á geymsluþol matvæla
- átta sig á mikilvægi rekjanleika og tengingu við innkallanir matvæla
- vera fær um að fylgja verklagi við þrif í matvælavinnslu og geta metið árangur þeirra þrifa
Nánari upplýsingar á námskrá.is