JARÐ2ES05 - Jarðkerfisfræði

Jarðkerfisfræði

Einingafjöldi: 5
Þrep: 2
Forkröfur:
Kynnt eru jarðfræði og umhverfisvísindi þar sem lögð er áhersla á að skilja jörðina sem kerfi samsett úr ólíkum hvelum og víxlverkanir þeirra á milli. Áhersla er lögð á umhverfisfræðslu með eðlisfræðilegri nálgun á viðfangefnið. Fjallað verður um myndun hagnýtra jarðefna og vandamál sem tengjast vinnslu þeirra. Nemendur vinna verkefni, sjálfstætt og í hópum þar sem lögð eru fyrir vísindaleg gögn. Unnið er með heimildir á neti, í tímaritum og fræðiritum. Niðurstöður úr verkefnavinnu eru kynntar í stuttum fyrirlestrum og skýrslum.

Þekkingarviðmið

Nemandi skal hafa öðlast þekkingu og skilning á:
  • hugtökunum berghvel, vatnshvel, lífhvel og lofhjúpur
  • ýmsum ferlum sem stjórna því umhverfi sem mótast hefur á jörðinni og öðrum plánetum
  • þeim rannsóknum sem eru stundaðar af háskólum og alþjóðlegum stofnunum
  • óratíma jarðsögunnar (e. deep time)
  • • áhrifum afstöðu sólar og pláneta
  • • áhrifum mannsins á hnattrænar breytingar
  • heimsmynd jarðfræðinnar í ljósi flekakenningarinnar

Leikniviðmið

Nemandi skal hafa öðlast leikni í að:
  • lesa í umhverfi sitt út frá helstu hringrásum í náttúrunni
  • setja upp, lesa og túlka flókin gögn úr töflum og á myndrænu formi
  • nota gögn og heimildir úr þekktum vísindatímaritum í raunvísindum
  • setja fram og túlka kort og gröf

Hæfniviðmið

Nemandi skal geta hagnýtt þá almennu þekkingu og leikni sem hann hefur aflað sér til að:
  • gera sér grein fyrir samhengi í náttúrunni út frá þeim ferlum sem stýra umhverfinu á jörðinni og öðrum plánetum
  • meta á gagnrýninn hátt og taka rökstuddar ákvarðanir er varða umgengni í náttúrunni í tengslum við mannlegar athafnir
  • geta á sjálfstæðan hátt aflað sér upplýsinga um náttúruvísindalegt efni og metið á gagnrýninn hátt
  • beita þekkingu sinni til að skilja upplýsingar um raunvísindi sem koma fram í fjölmiðlum og daglegri umfjöllun
  • meta áhrif mannsins á umhverfi sitt í hnattrænu samhengi
  • gera sér grein fyrir mun á skammtíma- og langtímabreytingum í stjarnfræðilegu samhengi
Nánari upplýsingar á námskrá.is