Fyrirtækjasmiðja, inngangur
Einingafjöldi: 5
Þrep: 1
Kennt er hvernig á að standa að stofnun fyrirtækis. Lögð er sérstök áhersla á að nemendur, upp á eigin spýtur, skipuleggi fyrirtæki, hanni vöru eða þjónustu og skipuleggi sölu á henni. Nemendur fá jafnframt að kynnast uppbyggingu og skipulagi fyrirtækja og stofnana og hvernig þau ná best markmiðum sínum. Meðal annars er farið yfir markmiðssetningu og vinnu- og framleiðsluferli.
Þekkingarviðmið
Nemandi skal hafa öðlast þekkingu og skilning á:
- markaðssetningu
- framleiðsluferli
- starfsmannamálum
- stjórnun fyrirtækis
- rekstri fyrirtækis
- fjármálum fyrirtækis
- einföldum efnahagsreikningi
- einföldum rekstrarreikningi
- einföldum arðsemisútreikningum
- helstu rekstrarformum fyrirtækja
Leikniviðmið
Nemandi skal hafa öðlast leikni í að:
- útbúa vöru út frá vöruhugmynd
- gera markaðsáætlun - auglýsinga- og kynningaráætlun
- gera markaðskönnun
- stofna fyrirtæki
- reka fyrirtæki
- vinna saman í hóp
- vinna innan tímaramma
- gera einfalda viðskiptaáætlun
Hæfniviðmið
Nemandi skal geta hagnýtt þá almennu þekkingu og leikni sem hann hefur aflað sér til að:
- stofna fyrirtæki eftir skóla
- undirbúa og framkvæma krefjandi verkefni
Nánari upplýsingar á námskrá.is