Heimavist og mötuneyti

Við FNV er starfrækt heimavist sem rúmar allt að 142 nemendur á aðalvist. Heimavistin er staðsett rétt norðan við bóknámshús skólans þar sem einnig er mötuneyti skólans. Flest herbergin eru tveggja manna með sér salerni og sturtu.

Heimavist

Heimavistargjöld eru samkvæmt gildandi gjaldskrá FNV. 

Öllum heimavistarnemum er skylt að greiða fyrir:

  • 5 daga fæði
  • netgjald
  • þvottagjald

Greiðslufyrirkomulag

  • Húsaleiga og fæðisgjöld eru innheimt í fjórum jöfnum greiðslum yfir önnina.
  • Net- og þvottagjöld eru innheimt með fyrstu greiðslu ásamt tryggingagjaldi.
  • Íbúar heimavistar geta sótt um húsnæðisbætur og jöfnunarstyrk.

Hægt er að óska eftir einstaklingsherbergi, en ekki er hægt að tryggja slíka úthlutun þar sem það fer eftir fjölda umsókna og nýtingu heimavistar hverju sinni.

Símanúmer heimavistarstjóra er  846-6575.

Mötuneyti

Nemendur sem ekki búa á heimavist geta einnig keypt fæði í mötuneyti skólans.

Í boði er:

  • 5 daga hádegisfæði: kr. 127.500 á önn
  • hádegisfæði 2–4 daga í viku
  • stakar máltíðir: kr. 2.500

Til að skrá nemanda í mat skal senda tölvupóst á grettistak@grettistak.is og taka fram:

  • nafn nemanda
  • kennitölu greiðanda
  • fjölda daga í mat á viku