Íþróttaakademía FNV er fyrir íþróttafólk sem vill ná árangri í sinni grein og tileinka sér vinnubrögð, aga og lífsstíl afreksfólks.
Nemendur fá tækifæri til að efla sig bæði líkamlega og andlega með skipulögðu námi, styrktarþjálfun og afreksþjálfun.
Akademían veitir nemendum stuðning, fræðslu og sveigjanleika til að sinna sinni íþrótt markvisst samhliða bóknámi.

Inntökuskilyrði

  • Nemandi þarf að hafa lokið grunnskólaprófi
  • Nemandi er virkur iðkandi í íþróttafélagi og stundar íþróttina af metnaði
  • Nemandi er með skrifleg meðmæli frá þjálfara
  • Nemandi samþykkir vímulausan lífsstíl

Yfirþjálfari hverrar greinar fer yfir umsóknir í akademíuna í upphafi hverrar annar og metur endanlega hvort umsækjendur uppfylla öll skilyrði til þátttöku.

Tilgangur og markmið

Markmið íþróttaakademíunnar er að styðja nemendur í að ná sem bestum árangri í sinni íþrótt og námi. Lögð er áhersla á:

  • markvissa líkamlega og andlega uppbyggingu
  • aukið sjálfstraust og bætta sjálfsmynd
  • aga, reglusemi og ábyrgð
  • heilbrigðan lífsstíl og góða næringu
  • liðsheild, samvinnu og jákvæð samskipti


Íþróttagreinar í boði

Boðið er upp á þátttöku í eftirfarandi íþróttagreinum:

  • Körfubolta
  • Fótbolta
  • Frjálsum íþróttum
  • Golf
  • Hestaíþróttum
  • Badminton
  • Júdó

Einnig er mögulegt að skoða þátttöku í öðrum greinum í samráði við akademíuna.

Einingar og skipulag náms

Nemendur eru skráðir í akademíuáfanga og geta lokið allt að 5 einingum á önn með góðri ástundun. Til að ljúka námi í íþróttaakademíunni þarf nemandi að ljúka að minnsta kosti fjórum verklegum áföngum.

Námið samanstendur af:

  • bóklegri kennslu einu sinni í viku
  • styrktarþjálfun einu sinni í viku
  • afreksþjálfun tengdri sinni íþróttagrein


Ástundun og reglur

Nemendur þurfa að stunda æfingar hjá sínu íþróttafélagi og fylgja ströngum mætinga- og agareglum akademíunnar. Ástundun þarf að vera að lágmarki 90% til að nemandi haldi rétti sínum til þátttöku á viðkomandi önn.

Neysla áfengis, tóbaks og fíkniefna er bönnuð í akademíunni og brot á þeim reglum getur leitt til brottvísunar.

Að námi loknu

Nemendur sem ljúka námi í íþróttaakademíunni með fullnægjandi hætti fá afhent skírteini því til staðfestingar við brautskráningu frá skólanum.

Skráning í íþróttaakademíu