Landbúnaðarháskóli Íslands og Fjölbrautaskóli Norðurlands vestra standa saman að námbraut þar sem nemendur hafa kost á að útskrifast með stúdentspróf frá FNV og búfræðipróf frá LbhÍ. Náttúruvísindabraut með búfræðisviði er ætlað að veita nemendum undirbúning undir háskólanám í náttúru- og búvísindum og tekur það að jafnaði 4 ár. Nemendur taka tvö fyrstu árin (4 annir) í FNV þar sem megináherslan er á kjarnagreinar til stúdentsprófs og valdar greinar á sviði raungreina. Seinni tvö árin taka nemendur við búfræðibraut Landbúnaðarháskóla Íslands á Hvanneyri. Nemendur brautskrást með stúdentspróf frá FNV og búfræðipróf frá Landbúnaðarháskóla Íslands. Þær skyldugreinar sem nemendur þurfa að taka við Landbúnaðarháskóla Íslands eru eftirfarandi: Búfræðigreinar (10 f-ein), búfjárgreinar (27 f-ein), bútæknigreinar (20 f-ein), búrekstrargreinar (16 f-ein), jarðræktar- og gróðuráfangar (20 f-ein) og valgreinar (27 f-ein). Sjá nánar á heimasíðu LbHÍ.
Forkröfur
Inntökuskilyrði á náttúruvísindabraut eru að nemandi hafi lokið grunnskóla. Til að hefja nám á öðru hæfniþrepi í dönsku, ensku, íslensku eða stærðfræði þarf nemandi að hafa náð a.m.k. hæfnieinkunn B við lok grunnskóla eða að hafa lokið fyrsta þreps fornámi í þessum greinum.
Skipulag
Náttúruvísindabraut – búfræðisvið er fyrst og fremst verkefnamiðað bóklegt nám. Nemendur taka helstu raungreinar og stærðfræði í kjarna og taka síðan sérhæfðar greinar við LbhÍ. Kennsluaðferðir eru fjölbreyttar, byggja m.a. á verklegum æfingum og leiðsagnarmati og miðast við að allir nemendur eigi kost á að nýta hæfileika sína og fá endurgjöf á verkefni sín. Lögð er áhersla á sjálfstæð vinnubrögð og vinnusemi nemenda. Námssamfélagið gengur út á samvinnu kennara og nemenda sem skapar jákvætt og uppbyggilegt umhverfi til náms og starfa.
Námsmat
Í skólanum er lögð áhersla á fjölbreyttar aðferðir við námsmat. Námsmat getur farið fram með mismunandi hætti eftir ákvörðun kennara.
Reglur um námsframvindu
Lágmarkseiningafjöldi til stúdentsprófs er 200 einingar en heildareiningafjöldi ræðst af þeim einingum á búfræðisviði sem við bætast. Til að standast námsmat í áfanga þarf lágmarkseinkunnina 5. Við námslok skal hlutfall eininga á 1. þrepi vera 17 - 33%, á 2. þrepi 33 - 50% og á 3. þrepi 17 - 33%. Nemanda er heimilt að útskrifast með allt að 10% eininga á 4. þrepi. Í skólareglum eru gerðar kröfur um skólasókn.
Hæfniviðmið
- efla eigin sjálfsmynd og nýta styrkleika sína
- sýna frumkvæði og takast á við ólík verkefni innan skólans sem utan
- vera virkur þátttakandi í skólastarfinu og lýðræðissamfélagi
- tileinka sér víðsýni, gagnrýna hugsun og samkennd
- búa yfir öflugri siðferðisvitund og ábyrgðarkennd
- beita skapandi og lausnamiðaðri hugsun við nám og störf
- lesa heimildir og rannsóknargögn á gagnrýninn hátt
- taka þátt í rökræðum um samspil vísinda, tækni og samfélags
- tjá og rökstyðja skoðanir sínar og niðurstöður á skýran hátt
- gera sér grein fyrir órjúfanlegu samspili manns og náttúru
- beita fræðilegri hugsun og aðferðum við greiningu viðfangsefna, öflun upplýsinga, mælingar, mat, úrvinnslu og túlkun
- takast á við búrekstur og alhliða landbúnaðarstörf, ekki síst á sviði rekstrar, bútækni, jarð- og búfjárræktar
- takast á við frekara nám á sviði almennra náttúruvísinda, búvísinda og dýralækninga
Kjarni
Frjálst val