aðstoðarþjálfun, æfingaáætlun, íþróttakennsla
Einingafjöldi: 3
Þrep: 2
Forkröfur: ÍÞRF2ÞJ05
Þessi áfangi er hugsaður sem undirbúningur fyrir starf í íþrótta- eða frístundaskóla fyrir börn á aldrinum 4-12 ára eða í íþróttastarfi/frístundastarfi hjá íþróttafélögum, fyrir sama aldurshóp. Nemandinn mun setja upp æfingaáætlun í samráði við íþróttaþjálfara/kennara. Hann mun síðan þjálfa/kenna með íþróttakennara eða þjálfara. Æfingaáætlun og kennsla er metin í lok æfingakennslutímabils.
Miðað er við 40-50 klukkustunda vinnu nemanda undir stjórn þjálfara yfir eina önn.
Þekkingarviðmið
Nemandi skal hafa öðlast þekkingu og skilning á:
- kennslu og þjálfun barna og unglinga á aldrinum 4-12 ára
- helstu forsendum áætlanagerðar í íþróttum
- hlutverki íþróttaþjálfara sem fyrirmyndar barna og unglinga
Leikniviðmið
Nemandi skal hafa öðlast leikni í að:
- kenna börnum og unglingum grunntækni í ýmsum íþróttagreinum
- kynna nýja leiki og æfingar fyrir æfingahóp barna og unglinga
- hafa jákvæð og örvandi samskipti við skjólstæðinga sína
Hæfniviðmið
Nemandi skal geta hagnýtt þá almennu þekkingu og leikni sem hann hefur aflað sér til að:
- kenna börnum og unglingum ýmsa leiki og grunnæfingar í íþróttum undir stjórn íþróttakennara/þjálfara
- halda uppi góðum aga og virkni í sínum æfingahópi
- nýta sér upplýsingatækni við skipulagningu þjálfunar sinna æfingahópa í samráði við íþróttakennara/þjálfara
Nánari upplýsingar á námskrá.is