MLSU1LS03 - Málmsuða-Logsuða

Logsuða og logskurður

Einingafjöldi: 3
Þrep: 1
Forkröfur: Engar
Nemendur læri að umgangast gashylki, logsuðu og logskurðatæki. Þeir læri að fylgja suðulýsingu, og sjóða plötur í suðustöðunum PA, PG og PF með I-rauf. Þeir geti lóðað, logskorið og þekki helstu öryggisatriði og geti brugðist við ef hætta skapast

Þekkingarviðmið

Nemandi skal hafa öðlast þekkingu og skilning á:
  • gashylkjum út frá þrýstingi, lit, lokum og öryggisatriðum
  • eiginleikum asetýlens og súrefnis
  • suðuloga, blöndun, hitastigi og þrýstingi
  • áhrifum kolandi-, súrefnisríkum- og hlutlausum loga á suðupolli
  • mismunandi raufum í samsetningu
  • virkni lóða og lóðdufts
  • af hverju ekki er hægt að skera alla málma
  • stöðlunum Íst en 287-1 og Íst en 25 817
  • öryggismálum

Leikniviðmið

Nemandi skal hafa öðlast leikni í að:
  • umgangast suðutæki
  • fara eftir öryggisreglum
  • sjóða plötustál 0,8 til 3mm með i- rauf í pa, pf og pg

Hæfniviðmið

Nemandi skal geta hagnýtt þá almennu þekkingu og leikni sem hann hefur aflað sér til að:
  • setja upp mæla á hylki, slöngur og sköft
  • leita leka.
  • velja rétta spíssa og vinnuþrýsting eftir efnisþykktum
  • nota suðulóð og lóðduft
  • logskera stál fríhendis
  • gera sjónmat samkvæmt Íst en 25 817
Nánari upplýsingar á námskrá.is