ÍÞRÓ1ÚH01 - Útivist og hreyfing

hreyfing, jákvæð upplifun, sjálfstyrking, Útivist

Einingafjöldi: 1
Þrep: 1
Forkröfur: Engar
Markmið námsins er að hafa uppbyggjandi áhrif á líkamlega heilsu og andlega og félagslega líðan. Kennslan byggist á því að styrkja sjálfsmynd nemanda og auka vellíðan hans með iðkun íþrótta. Jákvæð upplifun íþróttaiðkunar leggur grunn að heilsusamlegum lífsstíl nemenda. Markmiðin skal aðlaga að almennu skólastarfi. Stefnt er að því að nemendur fræðist um líkamsrækt, heilsuvernd og næringu og læri leiðir til að rækta líkama sinn sér til heilsubótar og ánægju til æviloka.

Þekkingarviðmið

Nemandi skal hafa öðlast þekkingu og skilning á:
  • gildi útivistar og hreyfingar fyrir heilsu og líðan
  • almennum búnaði til styttri gönguferða í nærumhverfi
  • verkefnum sem snúa að gerð eigin æfingaáætlunar
  • samtengingu næringar og hreyfingar við stjórnun líkamsþyngdar
  • öflun og framsetningu upplýsinga af internetinu og öðrum miðlum

Leikniviðmið

Nemandi skal hafa öðlast leikni í að:
  • geta skipulagt og tekið þátt í gonguferðum í nærumhverfi
  • geta útbúið sig eftir aðstæðum hverju sinni
  • geta notað tæki til greiningar á líkamlegu álagi

Hæfniviðmið

Nemandi skal geta hagnýtt þá almennu þekkingu og leikni sem hann hefur aflað sér til að:
  • stunda göngu sér til heilsubótar og ánægju
  • vinna eftir eigin æfingaáætlun með ákveðin markmið í huga
  • miðla þekkingu sinni um heilsusamleg áhrif hreyfingar til annara á jákvæðan hátt
  • vera meðvitaður um umhverfi sitt og læri að njóta þess
Nánari upplýsingar á námskrá.is