STÆR1DL03 - Stærðfræði með áherslu á peninga

Peningar, tímahugtök, verðgildi

Einingafjöldi: 3
Þrep: 1
Ný menntastefna er höfð til grundvallar og grunnþættir menntunar eru hafðir að leiðarljósi. Áhersla verður á peninga og gildi þeirra. Unnin verða mismunandi verkefni, farið í vettvangsferðir í verslanir, veraldarvefurinn nýttur og notaðir verða tilboðsbæklingar og spil. Stefnt er að því að viðhalda og byggja ofan á þann grunn sem nemandi hefur þegar tileinkað sér.

Þekkingarviðmið

Nemandi skal hafa öðlast þekkingu og skilning á:
  • Íslenskum peningum
  • gildi og meðferð peninga
  • að til eru fjölbreyttir gjaldmiðlar

Leikniviðmið

Nemandi skal hafa öðlast leikni í að:
  • borga og/eða taka við viðeigandi peningaupphæðum
  • Þekkja íslenska peninga
  • nýta sér og/eða vinna með peninga í víðu samhengi

Hæfniviðmið

Nemandi skal geta hagnýtt þá almennu þekkingu og leikni sem hann hefur aflað sér til að:
  • nýta sér peninga í athöfum daglegs lífs
  • framkvæma greiðslu eða borgun í réttu hlutfalli við útgjöld
  • nýta sér viðeigandi hjálpartæki þegar það á við, s.s. reiknivél í símum
  • Átta sig á hvaðan peningarnir koma og mikilvægi þess að halda vel utan um þá
Nánari upplýsingar á námskrá.is