STÆR1GS03 - Stærðfræði með áherslu á almenna stærðfræði

grunnaðgerðir

Einingafjöldi: 3
Þrep: 1
Ný menntastefna er höfð til grundvallar og grunnþættir menntunar eru hafðir að leiðarljósi. Unnið verður með útreikninga og stærðfræðileg hugtök sem nýtast nemendum í daglegu lífi. Dæmi um viðfangsefni eru tölur, samlagning, frádráttur, margföldun og deiling. Stefnt er að því að viðhalda og byggja ofan á þann grunn sem nemandi hefur þegar tileinkað sér.

Þekkingarviðmið

Nemandi skal hafa öðlast þekkingu og skilning á:
  • undirstöðuatriðum í reikningsaðgerðum
  • mikilvægi stærðfræðinnar í daglegu lífi
  • notkunarmöguleikum vasareiknis
  • finna mismunandi aðferðir og lausnir út frá gefnum upplýsingum

Leikniviðmið

Nemandi skal hafa öðlast leikni í að:
  • nota vasareikni
  • nota algeng stærðfræðitákn
  • finna mismunandi aðferðir og lausnir út frá gefnum upplýsingum

Hæfniviðmið

Nemandi skal geta hagnýtt þá almennu þekkingu og leikni sem hann hefur aflað sér til að:
  • skrá lausnir sínar á skipulagðan hátt
  • fylgja fyrirmælum sem gefin eru
  • beita skipulögðum aðferðum við lausn verkefna sem tengjast námsefninu
Nánari upplýsingar á námskrá.is