STÆR1TG03 - Stærðfræði með áherslu á talnagildi

Talnagildi

Einingafjöldi: 3
Þrep: 1
Forkröfur: Engar
Ný menntastefna er höfð til grundvallar og grunnþættir menntunar eru hafðir að leiðarljósi. Unnið verður með tölur og gildi þeirra með fjölbreyttri nálgun. Meðal annars með mismunandi verkefnavinnu, vettvangsferðum í verslanir. Í gegnum veraldarvefinn og notaðir verða tilboðsbæklingar og spil. Stefnt er að því að viðhalda og byggja ofan á þann grunn sem nemandi hefur þegar tileinkað sér.

Þekkingarviðmið

Nemandi skal hafa öðlast þekkingu og skilning á:
  • hvar og hvenær talnagildi koma við sögu í daglegu lífi
  • tölum og reiknisaðgerðum
  • forgangsröðun aðgerða
  • algengum stærðfræðitáknum
  • gildi talna

Leikniviðmið

Nemandi skal hafa öðlast leikni í að:
  • vinna með tölur á fjölbreyttan hátt
  • temja sér gagnrýna en um leið skapandi hugsun
  • skrá lausnir sínar á skipulagðan hátt

Hæfniviðmið

Nemandi skal geta hagnýtt þá almennu þekkingu og leikni sem hann hefur aflað sér til að:
  • nýta sér tölulegar upplýsingar
  • vinna með tölur
  • nýta sér viðeigandi stuðningstæki þegar það á við, s.s. reiknivél í símum
  • temja sér gagnrýna en um leið skapandi hugsun
Nánari upplýsingar á námskrá.is